Föstudagur, 10. maí 2002
Spennuþættirnir 24 á Stöð 2 eru sjálfsagt besta efnið sem boðið er upp á í íslensku sjónvarpi um þessar mundir. Þættirnir eru alls 24 og greinir hver þáttur frá einni klukkustund í örlagaríkum sólarhring í lífi leyniþjónustumannsins Jacks Bauer, sem miðlungsleikarinn Kiefer Sutherland gerir býsna góð skil. Spennan hefur nánast verið í hámarki frá upphafi og handritshöfundunum hefur hingað til tekist að ljúka hverjum þætti þannig að þeir sem eru komnir á kaf í atburðarásina mega ekki fyrir nokkra muni missa af þeim næsta.
Sólarhringurinn er nú rúmlega hálfnaður og satt best að segja átti ég ekki von á öðru en að sagan myndi missa dampinn þegar Jack bjargaði eiginkonu sinni og dóttur úr klóm terroristanna um hádegisbilið. Raunin hefur hins vegar verið þveröfug, spennan magnast enn og fléttan verður stöðugt flóknari og forvitnilegri. Auk þess sem fjölskylda Jacks er síður en svo hólpin þó allt virðist með kyrrum kjörum í augnablikinu. 24 eru gott dæmi um hvernig hægt er að fanga áhorfendur í net eftirvæntingar og óvissu og sennilega hefur þetta ekki tekist betur síðan Dickens hélt fólki á barmi taugaáfalls þegar hann birti kafla úr sögum sínum í dagblöðum jafnóðum og hann skrifaði þá og Stephen King dró mann út í bókabúð með nokkurra daga millibili til að tékka á hvort nýjasta "Green Mile" bókin væri komin til landsins. Svona á afþreyingarefni að vera!
| 16:19 |