»  fjölmiðlar  »  júní 2002
efnisflokkar

fjölmiðlar
júní 2002

a long time ago...
Áfram Asía
Mánudagur, 24. júní 2002

Vísindamenn hafa komist að því að íþróttamenn séu búnir að ná hámarki getu sinnar og muni ekki bæta árangur sinn að marki nema með svindli og neyslu ólöglegra lyfja. Það hlýtur því að vera tími til kominn að fólk hætti þessu merkingarlausa sprikli og snúi sér að uppbyggilegu glápi á fréttir og bíómyndir. Knattspyrnan hverfur þó varla af sjónarsviðinu, enda ættu 11 menn svo sem að geta stillt strengi sína betur saman og skorað fleiri mörk í dag en í gær án lyfjagjafar.

Fótbolti er líka eitthvað miklu meira en íþrótt eins og sést best þessa dagana þegar allir málsmetandi letihaugar og ístrubelgir sameinast við tækin og svitna með spengilegum goðum sínum á HM. Mót af þessu tagi valda heiðarlegum sjónvarpssjúklingum ómældu hugarangri enda eru fótboltabullur með frekari minnuhlutahópum og fá allt sitt fram, þannig að fréttum og föstum liðum er ætið fórnað þegar íþróttaviðburðir eru annars vegar. Ónæðið er þó varla merkjanlegt í ár, enda er keppt í Asíu og þar er sólarhringurinn öfugsnúinn og því er leikjum yfirleitt lokið fyrir hádegi. Krafa hins þögla minnihlutahóps sem vill sem minnst af boltasparki útlendinga vita hlýtur því að vera sú að öll stórmót í hópíþróttum verði framvegis haldin í Asíu og aðrar íþróttagreinar verði hreinlega lagðar niður enda verða engin met slegin í þeim framar án þess að brögð séu í tafli.

Fréttablaðið.


Stóra núllið
Laugardagur, 01. júní 2002

:: birt: 01. 06. 2002 :: Fréttablaðið ::

Einn af mínum skárri kunningjum benti mér nýlega á að besta skemmtiefni í sjónvarpi væri að finna á kristilegu stöðinni Ómega. Þeir sem eru sæmilega sterkir á andlega svellinu geta auðvitað hlegið dátt að undarlegum kenningum predikaranna en allar góðar vætti hjálpi hinum. Boðskapurinn og heilaþvotturinn sem þarna er stundaður virðist ekki eiga neina samleið með kærleiksboðskap frelsarans og allt gengur þetta út á að skipta mannkyninu í tvo hópa; hina hólpnu og hina fordæmdu. Fæ samt ekki séð að hinir smurðu beri meira úr býtum en við syndaselirnir.Einn predikarinn lýsti því til dæmis yfir fyrir kosningar að Björn Bjarnason væri smurður - greinilega líka á skósólunum þar sem hann rann á rassinn. Borgarstjórinn var hins vegar bannfærður og stendur þó uppi með pálmann í höndunum. Þeir smurðu fá hins vegar að njóta þeirrar ánægju að opna veskin og kaupa meðal annars syndaaflausn í fuglslíki á 50.000 krónur. Maður verður bara sáttur við að vera þunglyndur, gjaldþrota og drykkfelldur eftir að hafa séð hvert hlutskipti hinna hólpnu er, enda trúir maður því tæpast að leiðin til betra lífs felist í því að líta niður á meðbræður sína og kvitta brosandi undir fjöldamorð Ísraelsmanna, en eins og sjónvarpsstjóri Ómegu benti einu sinni á megum við ekki vera fordómafull því þá verðum við eins og eskimóar - vitum ekki neitt.


Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff