Mánudagur, 24. júní 2002
Vísindamenn hafa komist að því að íþróttamenn séu búnir að ná hámarki getu sinnar og muni ekki bæta árangur sinn að marki nema með svindli og neyslu ólöglegra lyfja. Það hlýtur því að vera tími til kominn að fólk hætti þessu merkingarlausa sprikli og snúi sér að uppbyggilegu glápi á fréttir og bíómyndir. Knattspyrnan hverfur þó varla af sjónarsviðinu, enda ættu 11 menn svo sem að geta stillt strengi sína betur saman og skorað fleiri mörk í dag en í gær án lyfjagjafar.
Fótbolti er líka eitthvað miklu meira en íþrótt eins og sést best þessa dagana þegar allir málsmetandi letihaugar og ístrubelgir sameinast við tækin og svitna með spengilegum goðum sínum á HM. Mót af þessu tagi valda heiðarlegum sjónvarpssjúklingum ómældu hugarangri enda eru fótboltabullur með frekari minnuhlutahópum og fá allt sitt fram, þannig að fréttum og föstum liðum er ætið fórnað þegar íþróttaviðburðir eru annars vegar. Ónæðið er þó varla merkjanlegt í ár, enda er keppt í Asíu og þar er sólarhringurinn öfugsnúinn og því er leikjum yfirleitt lokið fyrir hádegi. Krafa hins þögla minnihlutahóps sem vill sem minnst af boltasparki útlendinga vita hlýtur því að vera sú að öll stórmót í hópíþróttum verði framvegis haldin í Asíu og aðrar íþróttagreinar verði hreinlega lagðar niður enda verða engin met slegin í þeim framar án þess að brögð séu í tafli.
Fréttablaðið.
| 19:43 |