Laugardagur, 31. ágúst 2002
Jay Leno er þreytandi vindbelgur sem varð endanlega óþolandi eftir að hann drekkti spjallþætti sínum í yfirgengilegri amerískri þjóðrembu eftir árásirnar þann 11. september. Maður festist þó stundum yfir fallega, fræga og sniðuga fólkinu sem heimsækir hann. Hvert orð er fyrirfram ákveðið og allt gert eftir reglum Hollíwúddsins. Hinn fullkomni óraunveruleiki.
Hinn ágæti grínisti og leikari Dennis Leary hitti þó í mark um daginn þegar hann benti á að í gamla daga fór fólk sem átti við áfengisvandamál að stríða í meðferð. Nú fær það hins vegar eigin sjónvarpsþátt! Þættir þessir eru að tilefnislausu kenndir við raunveruleikasjónvarp sem getur ekki gengið upp þar sem það er ekki til neinn raunveruleiki fyrir framan kvikmyndatökuvélar. Leno sannar það best sjálfur.
Gamla fyllibyttan, dópistinn og leðurblökuætan Ozzy Osbourne hefur náð gríðarlegum vinsældum með þættinum sínum á MTV. Þar gefst okkur vikulega tækifæri á að fylgjast með hvernig hjólhýsapakk og hvítt rusl hegðar sér þegar það kemst í álnir og flytur til Beverly Hills. Börnin eru í besta falli fávitar. Kerlingarófétið rífur kjaft eins og sjóari og pissar í viskíflöskur á meðan Ozzy vafrar um blindfullur og vitlaus, tuðandi einhverja óskiljanlega þvælu. Skemmtilegt en á ekkert skylt við raunveruleika. En hver vill svo sem fylgjast með dæmigerðri vísitölufjölskyldu í Grafarvoginum?
Fréttablaðið.
| 19:39 |