»  fjölmiðlar  »  Af fórnarlömbum níðinga og leiðinda
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Af fórnarlömbum níðinga og leiðinda
Þriðjudagur, 24. september 2002

Sjónvarpið hefur leyst geðlækninn minn af með miklum sóma í
sumarfrísþunglyndinu enda eiga leikföng leiðans og fórnarlömb fásinnisins alltaf öruggt athvarf í sófanum fyrir framan kassann. Law&Order: Special Victims Unit á Skjá Einum hefur verið algjör himnasending.

Þættirnir eru að vísu endursýndir, svona eins og gærdagurinn og dagurinn þar áður hjá manni sjálfum, en vilji svo heppilega til að maður hafi ekki séð þá í frumsýningu er maður bara í góðum málum. Fórnarlömb íslensk veruleika geta sem sagt stytt sér stundir yfir illum örlögum sakleysingja sem lenda í klónum á kynglæponum og öðru hyski. Ekki spillir fyrir að þættirnir eru þess eðlis að maður getur haldið þræðinum þó maður missi af byrjuninni eða gleymi sér á fjarstýringaflakkinu um aðrar stöðvar á meðan auglýsingahléin slíta sundur frásögnina. Rapptöffarinn Ice-T er svo punkturinn yfir i-ið. Dásamlega út úr kú sem góðhjörtuð en gróf lögga sem lætur sér annt um krakka og kvaldar sálir.

Bestu kvöld vikunnar eru fimmtudagskvöldin þegar Skjárinn endursýnir bæði upprunalega Law&Order þætti með krumpufésinu Jerry Orbach og súkkulaðinu Benjamin Bratt sem var einu sinni kærastinn hennar Júlíu Róberts. Held samt að ég hafi verið búinn að sjá báða þættina síðasta fimmtudag áður þannig að þessi sæla er líklega senn á enda. Spurning um að snúa sér að Siska á RÚV eða hringja bara í lækninn og láta leggja sig inn.

Fréttablaðið.


| 19:40 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff