»  fjölmiðlar  »  Einn á móti öllum
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Einn á móti öllum
Laugardagur, 14. september 2002

Spjallþættir á borð við Kastljósið og Ísland í dag standa og falla með umsjónarmönnum og vali þeirra á viðmælendum. Þetta er sjálfsagt álíka flókið og að velja í landslið enda eru stundum skoruð ódauðleg mörk þegar vel tekst til. Rétt eins og í boltanum.

Snorri Már og Guðrún í Íslandi í dag hljóta að eiga uppstillingu ársins, þó það sé rétt hálfnað. Að leiða saman Jón Viðar Jónsson, leikhúsvitring, og leikhússtjóra stóru leikhúsanna var tær snilld. Þetta var án efa besta sjónvarpsefni síðustu viku. Fyndið, spennandi og hádramatískt.

Jón Viðar er mögnuð týpa og hikar ekki við að vera þrasgjarn, pirraður og fúll ef svo ber undir. Töffari sem gefur ekki túskilding fyrir almenningsálitið. Hann les stöðuna, stemninguna og andstæðingana vel og kemur sínu til skila á eftirminnilegan hátt. Hann tæklaði þjóðleikhússtjóra auðveldlega. Skammaði hann fyrir að ýmist vanrækja klassíkina eða gera henni hörmuleg skil og hafði margt til síns máls þó Chekov og Strindberg geti stundum drepið naut úr leiðindum. Stefán Baldursson átti sér ekki viðreisnar von og var langt frá sínu besta. Kannski enn móður eftir hlaupin í kringum Árna.

Guðjón Petersen í Borgarleikhúsinu slapp betur frá Jóni, enda féll verkefnaval hans betur að smekk Jóns þó vissulega væri þar margt asnalegt og hugsanlega klént. Jóni tókst þó samt að minna Guðjón á að hann sé vart maður til að stjórna uppfærslum á Shakespeare.

Þetta var frábært og endursýning er óumflýjanleg.


Fréttablaðið.


| 19:37 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff