»  fjölmiðlar  »  Lengi getur gott versnað
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Lengi getur gott versnað
Laugardagur, 07. september 2002

Ég gat ekki stillt mig um að horfa á lokaþátt Dark Angel á Stöð 2. Ég kolféll nefnilega fyrir genabreyttu gellunni Max þegar þættirnir hófu göngu sína í fyrra og kunni því ekki við annað en að kveðja stúlkuna þó ég hafi lítið nennt að fylgjast með ævintýrum hennar í seinni seríunni. Þættirnir voru skemmtilegt bull framan af en urðu síðan asnalegt bull og þá hvarf áhuginn þó aðalleikkonan sé hið föngulegasta fljóð. Hún kvaddi þó með hressilegum stelpuslag sem var gott

Dapurleg örlög þessara þátta leiða hugann að fleiri þáttum sem voru tær snilld, þegar þeir komu fyrst á skjáinn, en misstu sig svo út í óendanlega vitleysu. Millenium úr smiðju Chris, X-Files, Carter fóru þessa leið.

Frábær fyrsta sería full af dulúð og ofbeldi. Annar árgangurinn var
óþolandi og þriðja árið er að fjara út á Sýn. Svipaða sögu er að segja af höfuðsnildinni X-Files. Góður hryllingur og mátulegur skammtur af bulli sem var bjargað með póstmódernískri sjálfsvitund. Formúlan hélt út í einhver ár en þvælan er endanlega tekið við.

Sýnist félagi Frasier vera að stefna sömu leið en aðeins þriðji hver þáttur var snilld í vetur. Leiðinlegt þegar Kanarnir fara af stað með góðar hugmyndir og geta ekki haldið þeim gangandi. Enn leiðinlegra er svo auðvitað að þeir skuli ekki kunna að hætta á toppnum og eyðileggja allt með ömurlegum lokaköflum og andleysi handritshöfunda.


Fréttablaðið.


| 19:38 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff