»  fjölmiðlar  »  Batnandi englum er best að lifa
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Batnandi englum er best að lifa
Laugardagur, 05. október 2002

Ég ákvað í vikunni að gerast nýr og betri maður. Ekkert mál. Bara smá breyting á hugarfari og lífstíl. Hætta að drekka og glápa á sjónvarpið. Þetta með brennivínið skýrir sig sjálft en ummæli Braga bóksala á Vesturgötunni, í Fréttablaðinu, um að fólk skriði örþreytt upp í rúm á hverju kvöldi algerlega eftir sig eftir "vídeóvitleysuna og skotbardagana" kom við illa við mig. Fór í bólið klukkan tíu með bók um mann sem drap konuna sína, börnin, foreldra sína og reyndi að kála viðhaldinu. Svaf eins og steinn.

Er samt strax byrjaður að sakna Kúba líbre. Fór hins vegar í gegnum dagskrá vikunnar hjá sjónvarpsstöðvunum og treysti mér eiginlega til að missa af
öllu. Þoli ekki spítala þannig að ER má sigla sinn sjó, Stóri vinningurinn gerir mig bara þunglyndan, fyrst öfundaði ég liðið af lottóvinningnum og nú
græt ég með þeim eftir að hann var tekinn af þeim. Peningar kaupa ekki hamingjuna en gera eymdina greinilega bærilegri. Njósnadeildin gæti verið ágæt en það fer ekki útsendurum MI5 að standa í að reyna við einstæðar mæður. Línan sem Bond lagði heldur enn. Löggurnar í nýjasta Law and Order afsprenginu eru óþolandi fávitar og ef ég horfi á Six Feet Under fyllist ég angist og firringu.

Get þó ekki neitað mér um að sjá sjálfstæðan Sverri Stormsker hjá Jóni
Ársæli á morgun og tel víst að ég geti ekki sleppt Futurama í Sjónvarpinu á miðvikudögum. Þættirnir eru snilld og drykkfeldi vélmennisperrinn Bender er sko minn maður. Bender og Stormsker? Gef bindindinu viku.

Fréttablaðið.


| 19:34 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff