Miðvikudagur, 23. október 2002
Allir þessir sjónvarpsþættir sem kenndir eru við raunveruleikann fara alveg óstjórnlega í taugarnar á mér, aðallega vegna þess að ég stend bjargfastur í þeirri trú að fólk sé aldrei það sjálft fyrir framan kvikmyndatökuvél og þessi svo kallaði raunveruleiki geti því aldrei orðið neitt nema sýndarraunveruleiki í besta falli.
Konanmín er farin að fylgjast með þessu Survivor dóti og í kjölfarið er ég að skilja hvernig má hafa gaman að þessu. Maður velur sér þann bjána sem
fer minnst í taugarnar á manni, heldur með honum og vonar að hann vinni. Ég vel auðvitað sætustu stelpuna, sem er líka iðulega mesta tíkin og á því alltaf góða sigurmöguleika.
Sá sýnishorn úr þætti sem heitir Temptation Island þegar ég var að pirrast yfir Survivor um daginn. Það er þáttur sem er meira að mínu skapi og ég sagði konunniminni að ég ætlaði að fara á þessa eyju og slappa af með margarítur í heitum potti með sjö allsberum undirfatamódelum á meðan hún fylgist með örlögum asnanna í Survivor. Runnu á mig tvær grímur þegar hún benti mér á að maður verður að taka makann með á freistingaeyjuna og hún myndi því stíga trylltan dans í tunglskininu með sjö sólbökuðum tröllköllum á meðan. Er ekki allt í lagi? Hver lætur sér detta svona dellu í hug? Þetta er asnalegra en Survivor. Sá samt glitta í eitt brjóst og hálfa rasskinn í sýnishorninu þannig að það má kannski horfa á þetta, það er að segja ef raunveruleikinn og myndavélin komast alla leið.
FRÉTTABLAÐIÐ
| 23:12 |