»  fjölmiðlar  »  Háski á hádegi, glens eftir kvöldmat
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Háski á hádegi, glens eftir kvöldmat
Laugardagur, 12. október 2002

Þar sem skammdegisþunglyndið er að sækja í sig veðrið fór ég að leita í dagskránni að gamanþáttum sem virka vel með prósakkinu. Rak þá augun í að Sjónvarpið sýnir snilldarmyndina High Noon klukkan 22.30 annað kvöld. Skyldugláp þannig að það er vissara að taka kvöldið frá. Ég þreytist ekki á því að þusa um mikilvægi þess að halda svart/hvítum perlum kvikmyndasögunnar að nýjum kynslóðum og ef RÚV myndi sýna svona eins og eina klassíska á viku þyrfti ekkert að tala um að leggja það niður.

Þá væri það nefnilega bæði að sinna menningar- og öryggishlutverki sínu með sóma.

En það var þetta með grínið. Ég verð að viðurkenna að ég hef verið pínu skotinn í Lauru San Giacomo frá því í Sex, Lies and Videotape og hlýt því að gleðjast yfir að hún sé mætt aftur í Just Shoot Me. Synd að Stöð 2 skuli hafa flutt þáttinn af laugardagskvöldum yfir á þriðjudaga. Það er eiginlega óhjákvæmilegt að missa af þessu. Félagi Frasier er líka kominn aftur. Alltaf velkominn þótt grauturinn sé farinn að þynnast.

Sá óvart þátt á Skjá Einum um daginn um einhvern búttaðan póstburðarmann sem er kóngur í Queens. Virðist hálfgerður bjáni en á bráðhuggulega konu og tengdapabba frá Helvíti. Fyndið. Þá er Raymond, sem allir elska, líka traustur. Hann á skemmtilegan bróður og foreldra frá Helvíti. Þau eru líka fyndin. Snilldarþættirnir Futurama toppa þetta svo auðvitað allt saman. Frábærir þættir úr smiðju gaursins sem fattaði upp á The Simpsons.

Miðvikudagskvöldin eru sem sagt orðin miðpunktur vikunnar.

Fréttablaðið.


| 19:32 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff