»  fjölmiðlar  »  Klassík
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Klassík
Föstudagur, 01. nóvember 2002

Sjónvarpið er að standa sig lygilega vel í endursýningum þessa dagana
og það verður að segjast eins og er að sunnudagskvöldin fyrir framan tækið eru afskaplega notaleg í svarthvítu. Fyrst kom High Noon, svo Möltufálkinn, þá Casablanca og annað kvöld fáum við Svefninn langa. Ómissandi mynd þar sem Bogart sýnir alla bestu taktana.

Möltufálkinn er ein þekktasta film noir myndin og það má verja að Svefninn langi sé það líka, þó ekki nema bara vegna þess að Bógí er þar frakkaklæddur með hatt í rigningunni umkringdur mistannhvössum tálkvendum.
Það er því einkar vel til fundið hjá RÚV að fylgja þessum sýningum eftir með M eftir Fritz Lang sem verður sýnd á næstunni. Myndin er frá árinu 1931 og skartar Peter Lorre í hlutverki barnamorðingja. Lorre lét einmitt til sín taka í Casablanca og Möltufálkanum og Lang er einn þeirra sem komu með nýja strauma til Hollywood og lögðu grunninn að skuggalegum stíl noir myndanna.

Klassíkin er þó ekki öll gömul og svarthvít og nú er mál til komið að Sjónvarpið hugi að endursýningum sígildra sjónvarpsþátta. Úrvalið af gamanþáttum stöðvanna þriggja er ágætt en það besta sem er í boði ristir varla jafn djúpt og það sem boðið var upp á fyrir áratug eða svo. Bendi sérstaklega á þættina um brjáluðu lögguna Sledge Hammer, eða Barða Hamar eins og hann hét í snilldarþýðingu Guðna Kolbeinssonar. Þetta er sjálfsagt djúpvitrasta og vanmetnasta snilldin sem komið hefur fram í amerísku sjónvarpi og ádeilan á Reaganmengað samfélagið árið 1986 á ekki síður við nú þegar Bush yngri ríður húsum.


| 23:27 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff