»  fjölmiðlar  »  Prósakk
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Prósakk
Laugardagur, 16. nóvember 2002

Þunglyndi er víst sá sjúkdómur sem herjar einna harðast á nútímamanninn. Þrátt fyrir þessa miklu útbreiðslu hefur lítið mátt tala um fyrirbærið og hingað til hefur það ekki þótt neitt voða fínt að vera haldinn kvillanum. Sjálfur hef ég ekki skammast mín neitt sérstaklega fyrir það að hafa í gegnum tíðina þurft að viðra svarta hundinn af og til. Ekki síst þar sem það var mikill léttir að komast að því á besta aldri að ég væri ekki genetískur leiðindapúki og með því að gleypa eina pillu á dag gæti ég verið mönnum sinnandi.

Mér fannst það bara dálítið flott, gott ef ekki kúl, enda er þetta kvilli sem hefur herjað á snillinga, hugsuði og listamenn í gegnum aldirnar og það er nú ekki ónýtt að vera í klúbbi með Jónasi Hallgrímssyni, Winston Churchill, Virginiu Wolf, Tchaikovsky og Kurt Cobain. Tony Soprano bættist svo í hópinn og gerði þetta enn flottara og ekki skemmdi fyrir að sjá það í Kastljósinu að glæsilegar fjölmiðlakonur gangast við svarta hundinum og skammast sín ekki neitt.

Þær voru bara svo brattar og flottar að maður gat varla trúað því að þær hefðu einhvern tímann skrapað botninn, eins og ég og fleiri. Það hefði kannski verið ráð að hafa í það minnsta einn veðraðan sjúkling, sem ber þunglyndisörin enn utan á sér, með. Það hefði örugglega gefið þessu meiri vigt þar sem þunglyndi er ekkert gamanmál þótt við sem erum að setja ríkiskassann á annan endann með prósakkneyslu okkar höfum það þokkalegt og getum talað um þetta eins mál sem hægt er að leysa. Þann möguleika sér maður ekki í myrkrinu.


| 23:39 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff