»  fjölmiðlar  »  Raddir í höfðinu
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Raddir í höfðinu
Laugardagur, 23. nóvember 2002

Mikael Torfason mætti í Kastljósið á fimmtudag og útskýrði meðal annars skrif sín um bókmenntagagnrýnanda þáttarins. Hann virðist þurfa að þola það að vera svolítið misskilinn, eins og svo margir aðrir sem tjá sig í rituðu máli. Það sem gerir mál Mikaels flóknara er svo rithöfundarskitzófrenían plagar hann svo mjög að stundum veit hann ekkert hver er að skrifa; Mikael sjálfur eða sögupersónur hans.

Ég er nú eiginlega á því að Mikael hafi komið með uppljóstrun ársins þegar hann sagði frá þessum röddum sem bergmála í hausnum á honum. Hann sagði
nefnilega einu sinni frá uppáhaldsheimasíðunum sínum í grein á vefnum strik.is og gat þess meðal annars að hann kíkti á þekktan klámvef reglulega. Þetta komst í fréttir, eins og fleiri klámsíðumál í sumargúrkunni, í fyrra.

Ríkislögreglustjórinn komst í málið og það var rannsakað gaumgæfilega, án þess að ákært væri. Nú hefur Mikael svo upplýst það að það var alls ekki hann sem skrifaði pistilinn eldfima, heldur skáldsagnapersóna hans Samúel. Bráðskemmtilegur árekstur skáldskapar og raunveruleika.

Best væri auðvitað ef málið yrði tekið upp aftur, í ljósi nýrra upplýsinga, og Samúel birt ákæra. Gagnrýnendur og aðrir hljóta þó að minnsta kosti að taka blammeringum Mikaels með meira jafnaðargeði í framtíðinni enda líkur á að þær séu komnar frá hugarfóstrum hans og eigi því litla stoð í raunveruleikanum.

Sjálfur er ég stundum misskilinn og nú síðast var ég skammaður fyrir að gera lítið úr Kastljóssþætti þar sem tvær þunglyndar konur sögðu frá veikindum sínum. Það var alls ekki meiningin enda framtak þeirra til fyrirmyndar. Allar raddir eru hins vegar löngu þagnaðar í hausnum á mér, eftir að ég fór á lyfin, og ég sit því einn uppi með skömmina.


Fréttablaðið


| 21:04 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff