»  fjölmiðlar  »  Skemmtilegur pirringur
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Skemmtilegur pirringur
Laugardagur, 09. nóvember 2002

Fátt er skemmtilegra en ritdeilur. Það er að segja þegar þær eru hressilegar og fólk rífur kjaft af innlifun og sannfæringu og orðar tilfinningar sínar og skoðanir af hörku. Þetta gerist því miður allt of sjaldan á þessum geldu tímum pólitískrar rétthugsunar. Mig minnir að síðasta flugeldasýning hafi verið á síðum Moggans þegar strigakjafturinn Sverrir Hermannson yfirgaf Landsbankann í illu. Þá var gaman að lifa.

Ég sá því fram á bjarta tíma þegar Mikael Torfason tók sig til og
blammeraði bókmenntarýninn Úlfhildi Dagsdóttur í grein sem svo gufaði upp af vefritinu Kistunni.

Rithöfundar og gagnrýnendur ættu að gera miklu meira af því að takast á. Það hleypir bara lífi í umræðuna og gerir hana
skemmtilegri.

Sjónvarpið sá því skiljanlega ástæðu til að auglýsa það sérstaklega í vikunni að Úlfhildur tæki skáldsögu Mikaels, Samúel, fyrir í Kastljósinu og andrúmsloftið var rafmagnað í veðurfréttunum á undan ögurstundinni.
Einhverjir vilja meina að Úlfhildur hafi komið til leiks í hefndarhug og hafi slátrað bókinni í pirringi. Ég gat ekki séð það. Hún var ekki að fíla bókina og ekkert athugavert við það. Það hefði samt sjálfsagt verið heppilegra fyrir hana að sleppa því alfarið að fjalla um Samúel undir þessum kringumstæðum. Best hefði auðvitað verið ef Mikael hefði verið fluttur heim og þau látin stæla í beinni.

Annars lýsti Mikael því yfir í Íslandi í bítið í vikunni að hann vonaðist
til þess að Úlfhildur ætti aldrei eftir að fara lofsamlegum orðum um verk sín, þannig að ef hún hefði virkilega viljað hefna sín hefði hún trúlega hlaðið bókina lofi.


| 23:31 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff