»  fjölmiðlar  »  Ég glápi, þess vegna er ég til
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Ég glápi, þess vegna er ég til
Laugardagur, 07. desember 2002

Einn af mínum skástu drykkjufélögum missti næstum því vitið fyrir nokkrum árum þegar hann sneri baki við djamminu og festist í barnauppeldi og heimilishaldi. Tilveran varð svo grá að hann byrjaði að "lifa fyrir Seinfeld", eins og hann orðaði það sjálfur. Það er aumt að lifa fyrir sjónvarpið. Það er svolítið eins og að deyja hægt. Sérstaklega þessi misserin. Ekki var nú Seinfeld neitt sérstakur en hann er skömminni skárri en hvítaruslþættirnir Fear Factor, Survivor og Temptation Island. Það eina sem gleður í þessum gerviraunveruleikaefnum er að Djúpa laugin stendur upp úr þessari hrúgu þátta sem ganga út á að láta vitlaust fólk gera sig að fíflum fyrir annað vitlaust fólk. Veljum íslenskan afþreyingariðnað!

Jay Leno er líka óþolandi fífl, Sex and the City er ekki svipur hjá sjónu og Frasier er á hraðri niðurleið. Futurama er eina hágæðaefnið sem er í boði um þessar mundir en maður lifir það samt af að missa af þætti. Enginn sér ástæðu til að sýna The Simpsons og Sópránógengið er ekki væntanlegt fyrr en eftir jól og verstu fregnir herma að þar sé þrettándinn líka farinn að þynnast.

Skjár Einn er helst líklegur til að bjarga manni frá sturlun í fásinni hversdagsins með Law&Order og reytingi af þolanlegum gamanþáttum. Allt er þetta þó marflatt og skilur ekkert eftir sig. Lá í pest í nokkra daga nýlega og hélt sönsum með því að horfa á Cartoon Network. Það er illt í efni hjá þeim sem lifa fyrir sjónvarpið. Þeir sem eru dýpst sokknir eru þó hólpnir enda eiga þeir Ómegu og Glæstar vonir.


Fréttablaðið

24.11


| 21:10 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff