»  fjölmiðlar  »  Erótík á fimmtudegi
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Erótík á fimmtudegi
Laugardagur, 25. janúar 2003

Það hvarflaði ekki að mér eitt augnablik að horfa á beina útsendingu frá Íslensku tónlistarverðlaununum enda fyrirbærið álíka spennandi og útsendingar frá íþróttakappleikjum að mínu mati. Sem sagt leiðindi. Ekki bætti úr skák að þessi ósköp höfðu af mér vikulegan kynlífsskammtinn þar sem beðmálastúlkurnar voru látnar víkja fyrir prjálinu. Ég sá því fram á að ganga kyndaufur til náða þangað til ég álpaðist inn á Stöð 2 og horfði á upphafið á erótísku spennumyndinni Sexual Predator, eða Kynlíf og morð.
Það kom þó fljótt í ljós að þessi mynd átti ekkert skylt við hvorki erótík né spennu. Berbrjósta bombur að nudda sér stynjandi utan í hinn ömurlega leikara Richard Grieco geta ekki kveikt í nokkrum manni. Afhverju fer Stöð 2 bara ekki alla leið og endursýnir Stjörnumerkjamyndirnar sem brautryðjandinn og menningarfrömuðurinn Jón Óttar Ragnarson sýndi á árdögum stöðvarinnar? Það er heiðarlegra en að bjóða upp á ljósblátt gerviklám sem gagnast engum.

Sýn hefur löngum boðið upp á þetta léttklám seint á kvöldin, oftar en ekki til að halda íþróttabullum vakandi þangað til hnefaleikaútsendingar byrja. Engin ástæða til að amast við því enda er það sérstakur þjóðflokkur sem hefur gagn og gaman að íþróttasjónvarpsstöðvum. Það hlýtur hins vegar að vera hart í búi á Lynghálsinum þegar almennum glápurum er boðið upp á þessi ósköp á fimmtudagskvöldi. Richard Grieco og erótík eiga bara ekki samleið en ég vil þó ekki útiloka það að hann muni skjóta upp kollinum í alvöru klámi. Þar verður hann vonandi á heimavelli.


| 14:49 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff