»  fjölmiðlar  »  Framhaldslíf Taggarts
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Framhaldslíf Taggarts
Laugardagur, 11. janúar 2003

Ætli það séu ekki eitthvað um 15 ár síðan geðstirði lögregluforinginn Taggart byrjaði að eltast við morðingja í Glasgow á þriðjudagskvöldum í Ríkissjónvarpinu. Þetta eru eftir því sem ég kemst næst lífseigustu sakamálaþættir sem framleiddir eru á Bretlandseyjum og hafa meðal annars unnið sér það til frægðar að drottningarmóðirin heitin missti aldrei af þætti. Það sem heillaði í upphafi var auðvitað hinn óendanlega pirraði og þreytulegi Jim Taggart sem eðalfyllibyttan Mark McManus túlkaði á sinn einstaka hátt.

Maður afskrifaði þættina því umsvifalaust þegar McManus hvarf ótímabært yfir móðuna miklu með aðstoð Bakkusar og persónulegra harmleikja. Þættirnir héldu þó sem betur fer áfram og undirmenn Taggarts hafa haldið merki hans á lofti með miklum sóma og það er auðvitað alveg sérstaklega krúttlegt að þættirnir skuli enn bera nafn aðalpersónunnar framliðnu.

Bráðskemmtilegar aukapersónur hafa frá upphafi sett sterkan svip á þættina og eftir að McManus féll frá hafa þeir einnig horfið yfir móðuna miklu meinafræðingurinn Robert Robertson, sem var alveg dásamlegur, og yfirforinginn Iain Anders en þættirnir halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. Dyggustu aðdáendur þáttanna fengu vægt taugaáfall í lok síðasta árs þegar eftirmaður Taggarts, hinn dyggðum prýddi Jardine var drepinn. Þetta sviplega fráfall markar þó ekki frekar en áður endalok þáttanna og rumpulýðurinn í Glasgow fær vart hendur um frjálst höfuð strokið á meðan
Jackie, Fraser og Robbie halda fullri heilsu. Það er mikil hugun harmi gegn.

Fréttablaðið.


| 16:12 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff