Mánudagur, 20. janúar 2003
Þátturinn 70 mínútur á Popptíví er merkilegt fyrirbæri. Umsjónarmennirnir kjamsa á Doritos snakki og þamba Pepsi ótæpilega og pissa svo í buxurnar. Þá fá þeir stundum gesti og reyna að fá þá til að drekka "ógeðsdrykkinn" sem er samsull af allskonar viðbjóði.
Þátturinn á föstudaginn var helst sögulegur vegna þess að sjálf Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sýndi og sannaði hversu alþýðleg hún er með því að mæta í létt spjall. Töluvert hefur fallið á hetjuímynd hennar síðustu vikurnar og því ekki úr vegi að bregða á leik og staðfesta að hún er enn flottari en Össur, Davíð og Steingrímur.
Reykvíkingar kusu Ingibjörgu Sólrúnu einu sinni með óbragð í munninum, að sögn forsætisráðherra, en nú hefur dæmið snúist við. Ég veit þó ekki hvort hún var með óbragð í munninum þegar hún tók sæti á lista Samfylkingarinnar í komandi alþingiskosningum. Ég veit ekki heldur hvort hún var með óbragð í munninum þegar hún samþykkti lánsábyrgð borgarinnar vegna Kárahnjúkavirkjunar, en ég veit að hún var með óbragð í munninum þegar hún fór af fundi Sveppa og félaga vegna þess að hún skellti óbragðsdrykknum í sig hiklaust og með glæsibrag. Litli bróðir segir mér að þarna hafi hún skorðað feitt hjá unga fólkinu en það ber þó að hafa í huga að líklega er meirihluti áhorfenda 70 mínútna ekki kjörgengur.
Einhverjum vinstri græningjum finnst hún hafa selt sig ódýrt en leikur samt forvitni á að vita hvort Steingrímur J. geti leikið þetta eftir henni. Steingrímur er auðvitað töffari en er Ingibjörg ekki bara flottust?
Fréttablaðið.
| 10:03 |