»  fjölmiðlar  »  Júróvisjón partí
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Júróvisjón partí
Sunnudagur, 16. febrúar 2003

Samband Íslendinga við Eurovision söngvakeppnina er brenglað enda verður útkoman iðulega sorglega hallærisleg þegar þjóðarsálin fær eitthvað sameiginlega á heilan. Þegar Íslendingar fengu fyrst að vera með var þjóðin einróma sammála um að Gleðibankinn væri frábært lag og það væri bara formsatriði að senda Eirík, Pálma og Helgu á staðinn. Keppnin var svo gott sem unnin.
Sameinuð Evrópa var að vísu ekki alveg sammála íslensku þjóðinni og hafnaði menningarsendiherrunum þremur í glimmermúnderingunum sem voru meira að segja halló á sínum tíma.

Við lifum samt enn í voninni og sendum "sigurlag" í keppina á hverju ári, það er að segja þegar við fáum að vera með. Götur Reykjavíkur tæmast og þjóðin slær upp Júróvisjón partíum og fagnar sigri fyrirfram. Nú er þetta meira að segja svo langt gengið að Sjónvarpið hélt sitt eigin Júróvisijón forpartý á laugardaginn og eins og alltaf þegar stofnunin tapar sér í fíflagangi var gengið of langt. Gísli Marteinn hleypti þessu af stokkunum með því að hóa saman nokkrum Eurovision töpurum saman í skjallsamsæti og Spaugstofan tók svo við. Hún er aldrei leiðinlegri en þegar hún brestur í söng þannig að það þarf ekki að hafa fleiri orð um þátt þeirra í gleðskapnum.
Veislan náði svohámarki í litlu Júróvisjón í Háskólabíói. Útsendingu sem hefði orðið óbærilega leiðinleg ef tæknilegir örðugleikar hefðu ekki poppað þreytandi lögin upp.
Þetta var í það minnsta aldrei spenanndi enda voru úrslitin ráðin áður en keppnin hófst. Allt samkvæmt Eruovision bókinni þar sem ekki stendur stafkrókur um gæði texta, tónlistar eða flutnings.

Fréttablaðið.


| 21:20 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff