»  fjölmiðlar  »  Kostuleg skrifstofublók
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Kostuleg skrifstofublók
Sunnudagur, 02. febrúar 2003

Teiknimyndaþættirnir Futurama eru frábært og sorglega vanmetið sjónvarpsefni. Drykkfelda og siðblinda vélmennið Bender er þar fremstur meðal jafningja og hefur séð til þess að maður hefur verið límdur við sjónvarpið á miðvikudagskvöldum. Þættirnir virðast, illu heilli, vera horfnir af dagskrá RÚV en staðgengillinn er þó sem betur fer ekki af verri endanum og fyrsti þátturinn af The Office bendir eindregið til þess að þættirnir standi vel undir öllu því lofi sem þeir hafa verið hlaðnir og væntingunum sem ætíð fylgja í kjölfarið.
Heimildarmyndir virðast vera mál málanna í dag og framsetning þáttanna er mjög svo í ætt við þá ágætu kvikmyndagrein. Þetta stílbragð gefur skrautlegum persónunum tækifæri til að tjá sig beint við myndavélina og þau eintöl og játningar gefa þeim skemmtilega breidd og færa þær nær áhorfandanum.

Skrifstofustjórinn og erkifíflið, David Brent, er burðarbitinn í þessu og kemur til með að fylla skarð róbotsins Bender ágætlega með öfugsnúinni pólitískri rétthugsun sinni og þeim stórkostlega misskilningi að hann sé nútímalegur heimspekingur. Ricky Gervais túlkar David af stakri snilld og nær ótrúlega vel að gera persónuna að samnefnara fyrir allt það sorglega innantóma og leiðinlega fólk, sem flest kennir sig við markaðsfræði, og tröllríður skrifstofum allra fyrirtækja, stórra sem smárra, þessi árin. Þrátt fyrir lífsspekina er þetta lið nefnilega oftast sorglega laust við frumlega hugsun og er auðvitað aldrei leiðinlegra en þegar það telur sig vera fyndið


Fréttablaðið.


| 12:16 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff