»  fjölmiðlar  »  Óþolandi amerísk forræðishyggja
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Óþolandi amerísk forræðishyggja
Sunnudagur, 09. febrúar 2003

Dagskrárstjórar og markaðsspekingar íslenskra ljósvakamiðla eru haldnir þeirri þrálátu meinloku að heimfæra allar amerískar áhorfs- og markaðskenningar yfir á íslenskt sjónvarp. Þessi tvö markaðssvæði eiga þó svo fátt sameiginlegt að útkoman hér heima verður oftast nær ansi brengluð.
Bandaríkjamenn eru vissulega feitastir í heimi og íslendingar stefna hraðbyri í að verða næst feitasta þjóð í heimi. Það þýðir þó ekki að sjónvarpshegðun þjóðanna sé hin sama.
Fyrir það fyrsta erum við á Íslandi yfir leitt einum árgangi eða svo á eftir sófarottunum í Bandaríkjunum og því þarf minnkandi áhugi bandarískra áhorfenda á tilteknu efni ekki að verða að veruleika á sama tíma á Klakanum. Ég horfði stundum á þættina um vampírubanann Buffy á Stöð 2 á föstudagskvöldum í fyrra. Þættirnir eru engin klassaframleiðsla en eru ágætis afþreying.
Nú hef ég ekki orðið var við stúlkuna lengi og datt því ekki til hugar að hana væri enn að finna í dagskrá Stöðvar 2.

Ég las það svo í dagskránni á föstudaginn að þættirnir eru sýndir klukkan fimmtán mínútur í sex á föstudagseftirmiðdögum. Hver er að horfa á sjónvarp þá?
Ekki ég og örugglega ekki heldur unglingar sem eru vissulega aðalmarkhópurinn. Þarna fer því ágætis framleiðsla sem kostar Stöð 2 örugglega drjúgan skilding í innkaupum algerlega forgörðum. Betra að sleppa þessu alveg. Buffy er kvöldþáttur.
Og hvað er þetta með Simpsons fjölskylduna? Þættirnir eru enn á blússandi siglingu ytra og nýbúið að semja um nokkra árganga til viðbótar. Síðast þegar Stöð 2 aumkaði sig yfir aðdáendur þessara bestu teiknimyndaþátta sjónvarpssögunar voru þeir sýndir á svipuðum tíma og Buffy og nú er einfaldlega ekki boðið upp á þessa snilld. Stöð 2 stal á sínum tíma hinum heillum horfnu X-Files þáttum og Simpson fjölskyldunni af RÚV og ber því ákveðin skylda til að leiða þættina til lykta þó Kaninn sé búin að snúa baki við Ráðgátunum og blóðsugubananum.
Þættirnir um geðlækninn Frasier njóta enn mikilla vinsælda hérlendis þó þeir fari versnandi og áhorf ytra hafi snarminnkað. Sjónvarpið heldur þó vonandi áfram að sýna þættina á kristilegum tíma. RÚV ætti auðvitað líka að leiðrétta þessa reginfirru í kringum Hómer og fjölskyldu og stela þeim bara til baka.


Fréttablaðið.


| 22:02 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff