»  fjölmiðlar  »  Vakkó Djakkó
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Vakkó Djakkó
Föstudagur, 07. febrúar 2003

Poppundrið Michael Jackson hefur einhverra hluta vegna alltaf farið í taugarnar á mér. Hann er óumdeildur afreksmaður á popptónlistarsviðinu og er eingetinn arftaki Elvis í mjaðmahnykkjum, metsölu og púngkreistingum. Sum lögin hans eru meira að segja líka góð og besta platan hans, Thriller, stenst tímans tönn ágætlega enn þann dag í dag. Það er meira en hægt er að segja um höfundinn.
Hann var einu sinni krúttlegur svertingjastrákur en hefur í gegnum árin umbreyst í náfölt og afskræmt viðundur. Heimildarþátturinn um Jackson sem RÚV snaraði upp á skjáinn á fimmtudaginn sýndi á ískaldan hátt hversu illa heimsfrægð og fáránlegt ríkidæmi getur leikið fólk. Jackson slær þá báða, Presley og Howard Huges, út í undarlegheitum. Býr í sínum eigin brenglaða heimi, snælduvitlaus, gangandi með grillur um að hann sé Pétur Pan.

Þátturinn sem slíkur var þó ekki merkileg framleiðsla og Martin Bashir reyndi ekki að draga dul á það að hann fór í verkefnið á fölskum forsendum með það að markmiði að afhjúpa Wacko Jacko, sem sjúkan barnaníðing. Ég ætlaði heldur betur að skemmta skrattanum í sjálfum mér yfir þessum umtala þætti, en þetta var bara ekkert gaman og þó ég hafi alltaf elskað það að hatast við Jakson varð ég dapur af því að horfa upp á þennan brjóstumkennanlega mann sem er ekki bara skemmdur af hroðalegu uppeldi og frægð, heldur handónýtur og getur vart talist börnum hollur félagsskapur óháð því hvort hann níðist á þeim kynferðislega eður ei.


| 21:40 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff