»  fjölmiðlar  »  Sjónvarpsstríðið
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Sjónvarpsstríðið
Laugardagur, 01. mars 2003

Bandaríkjamenn eru að fara í stríð. Það fer ekkert á milli mála og sést best í sjónvarpinu. Stríðsbrölt Bandaríkjamanna hefur verið vinsælt sjónvarpsefni allt frá því þeir böðluðust í Víetnam. Fíflagangurinn náði hámarki í Persaflóastríðinu fyrir 12 árum þegar George Bush eldri lét sprengja Írak aftur á steinöld í einum glæstasta herleiðangri Bandaríkjamanna fyrr og síðar. CNN sá um dramatíserínguna og ævintýraljómann.
Bandaríski afþreyingariðnaðurinn er þekktur fyrir að gera framhald af öllum sköpuðum hlutum og bráðum verður framhaldsþáttur Persaflóastríðsins tekin til sýninga í sjónvarpi út um allan heim. Spennan í heimalandi stríðsherrans fer stigvaxandi. Ekki þó vegna þess að saklausir borgarar í Írak verði stráfelldir í tilgangslausu stríði, heldur vegna þess að hinn vestræni heimur stendur ekki einhuga á bak við Bush.

Það hefur verið grátbroslegt að fylgjast með stríðsæsingum forsetans og enn dapurlegra að horfa upp á bandaríska sjónvarpsmenn renna á blóðbragðið.
Hálfbjáninn Jay Leno er að vísu löngu hættur að hreyfa við manni með smekklausu þjóðrembugríni sínu en það var sorglegt að horfa upp á þul í 60 Minutes amast við því að Bandaríkjamenn væru illa liðnir í Kóreu og samt væri Kórea ekki Frakkland. Botninum var svo náð um helgina þegar uppáhaldsnöldurseggurinn minn hann Andy Rooney lýsti því fokvondur yfir að Frakkar hefðu ekki rétt til þess að mótmæla fyrirhuguðu stríði þar sem það hefði kostað 150.000 Breta og Bandaríkjamenn lífið að frelsa Frakkland undan oki nasista. Þetta er væntanlega sömu rökin og liggja að baki því að Bandaríkjamenn sjá ekkert athugavert við það að Ísraelsmenn slátri Aröbum í anda Hitlers?

Fréttablaðið.


| 0:43 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff