»  fjölmiðlar  »  Tími til að skipta um nafn
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Tími til að skipta um nafn
Mánudagur, 03. mars 2003

Skosku sakamálaþættirnir um hinn geðstirða lögregluforingja Jim Taggart og undirmenn hans eru lífseigustu glæpaþættirsem framleiddir hafa verið fyrir breskt sjónvarp. Þættirnir hafa í gegnum tíðina verið misjafnir að gæðum en þeir standa þó alltaf fyrir sínu og maður hefur gætt þess í tæp tuttugu ár að missa ekki af þætti.
Það sem dró mig, og sjálfsagt flesta aðra, að þáttunum í upphafi var persóna Taggarts. Alveg hreint dásamlega geðstirður kall sem var þreytulegri og með meiri bauga en Derrick. Leikarinn Mark McManus lék Taggart af stakri snilld. Skilst samt að hann hafi verið æði takmarkaður leikari, Taggart hafi verið það eina sem hann gat leikið. McManus var fyllibytta af guðs náð og lést fyrir aldur fram fyrir góðum áratug eða svo.

Þættirnir héldu áfram í nafni hans og mér hefur hingað til þótt það svolítið sætt. Nú eru hins vegar allir leikararnir sem tóku þátt frá upphafi horfnir yfir móðuna miklu eða til annarra verkefna og því held ég að það sé tími til kominn að skipta um nafn. Sérstaklega í ljósi þess að nýi foringinn sem tók við af Jardine, sem var komið sviplega fyrir kattarnef nýlega, virðist eiga að vera einhvers konar Taggartgervingur; þrælgeðvondur, dónalegur, kaldlyndur en samt greinilega besta skinn inn við beinið. Taggart er dáinn. Það er best að við hörðustu aðdáendur förum að horfast í augu við það og þó Jackie og Fraser séu enn á staðnum eru tengingarnar við fortíðina orðnar ansi litlar eftir að Jardine, meinafræðingurinn geðþekki og McVitie yfirforingi hafa farið til fundar við Taggart í handanheimum.


| 19:48 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff