»  fjölmiðlar  »  Fífl í hvítum sokkum
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Fífl í hvítum sokkum
Miðvikudagur, 09. apríl 2003

Ég hljóp á mig fyrir nokkrum vikum þegar ég lýsti því yfir
spjallþáttastjórnandinn Jay Leno væri hættur að geta gengið fram af mér hvað yfirgengilega þjóðrembu varðar. Hann er búinn að gera smekklaust grín að "óvinum Bandaríkjanna" gengdarlaust allt frá því heimurinn komst yfir mesta sjokkið í kjölfar árásarinnar þann 11. september. Maður var orðinn svo dofinn eftir rúmt ár af Afganistan- og bin Laden brandörum að maður var hættur að láta Leno stuða sig.
Vont getur hins vegar lengi versnað og gráhærða erkifíflinu tókst að senda mig brjálaðan í háttinn í gær. Hann er að vísu ekki það mikill bógur að hann geti raskað geðró minni einn síns liðs þannig að hann fékk enn meira fífl til liðs við sig; einhvern Dennis Miller sem er víst skemmtilegasti og fyndnasti uppistandari og þáttastjórnandinn í landi hinna frjálsu og hugrökku.

Það er skemmst frá því að segja að kjafturinn á manninum var með ólíkindum og ég varð að horfa á hann til enda bara til þess að fullvissa mig um að hann væri ekki að grínast.
George W. Bush er frábær að hans mati og hann hefur aldrei verið stoltari af því að vera Kani en þegar hann horfði á amerískar fréttir af sprengjuregninu í Írak, fréttamaðurinn Peter Arnett, Michael Moore og allir aðrir sem hafa leyft sér að andmæla Bush voru útrópaðir fávitar með þvílíkum lýsingarorðaflaumi að maður gapti og er þó ýmsu vanur.
Leno skríkti eins og smástelpa yfir þessu öllu saman og salurinn klappaði og blístaraði þegar stríðinu var hampað og Saddam líkt við Hitler en baulaði þegar Moore og annað heilbrigt fólk bar á góma. Mér varð óglatt og áhyggjur mínar af andlegri heilsu Bandaríkjamanna eru að breytast í þunglyndiskast.
Ég er ekki mikið fyrir ritskoðun almennt en fer að hallast að því að það sé orðið siðferðilegt vandamál hvort varpa Jay Leno inn á heimili hugsandi fólks á Íslandi.
Leno er hættulegt fífl og það er þessi Dennis Miller líka. Hann kann ekki einu sinni að klæða sig almennilega og mætti í jakkafötum og hvítum sokkum! Það má segja ýmsilegt um þessa ágætis menn en hvað getur maður sagt um fólk sem hlær að stríðsbröndurum manna í hvítum sokkum?


| 23:02 |
komment

Já helvítið hann Dennis Miller. Læt nægja að vitna í skrif snillingsins Flosa (fyrrverandi HAM-gítarista, núverandi Innvortis-bassaleikara) sem birtust á gestabókinni minni um daginn:
"Gæti ekki verið meira sammála um þennan hrokafulla skeggapa hann Miller. Þetta gerpi er alltaf í stólnum hjá skvapgerpinu smámælta honum Leno og allir hlæja bara meðan fíflið ausar út úr sér þjóðernisrembingi og ofstopa. Ógeðslegt."

Já og afhverju í andskotans helvítinu sýna þeir ekki Letterman eða Conan í staðinn fyrir fokking Leno? Fávitar.

Nr. 1 | Laugurinn sjálfur | 12.04.2003 | 4:11:59 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff