»  fjölmiðlar  »  Sópranós enn og aftur
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Sópranós enn og aftur
Laugardagur, 19. apríl 2003

Það er heldur farið að halla undan fæti hjá vini mínum Tóný Sópranó. Efnahagsstjórn Bush er að gera honum lífið leitt og hjónabandið hangir á bláþræði. Þættirnir eru þó enn frábærir. Bandaríkjamenn voru eitthvað að tuða yfir því að þættirnir væru farnir að slappast þegar þessi árgangur var frumsýndur ytra. Ég fæ þó ekki betur séð en að vandinn liggi hjá þeim sjálfum fremur en handritshöfundunum, sem hafa sýnt snilldartakta í persónusköpun.
Þessi þáttaröð er þó vissulega frábrugðin því sem á undan er komið og þar liggur snilldin. Þættirnir þróast og persónurnar, sem flestar eru byggðar á erkitýpum, koma stöðugt á óvart. Hverjum hefði til dæmis dottið í hug að hinn miskunnarlausi handrukkari Furio væri rómantískur sveimhugi og að skepnan Ralphie væri pervert með mömmukomplexa?
Þetta er eitursnjallt en hefur að vísu haft þau áhrif að það eru miklu færri drepnir í þessum þáttum en áður. Ætli það sé ekki þessi skortur á ofbeldi sem pirraði Kanann?

Þó það sé vissulega nauðsynlegt að koma mönnum í hel af og til í svona glæpaþáttum þá er það svo magnað við The Sopranos að maður saknar drápanna ekkert sérstaklega. Mannlega dramað rígheldur. Við erum búin að skoða samband Tónýs við móður sína og börnin og erum komin á kaf í hjónabandið. Hljómar ekki spennandi, en er það nú samt.



| 2:28 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff