»  fjölmiðlar  »  Bretinn til bjargar
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Bretinn til bjargar
Laugardagur, 10. maí 2003

Hér er alls ekki verið að leggja kosningaáróður stjórnmálaflokkanna að jöfnu við meistaraverk Leni Riefenstahl en mig langaði bara að koma smá nasistaáróðri að og eins og í öllum skrifum mínum helgar tilgangurinn meðalið.

Holskefla langra og leiðinlegra sjónvarpsauglýsinga stjórnmálaflokkanna hefur eiginlega gert það að verkum að það hefur varla verið hægt að koma nálægt sjónvarpstækinu í vikunni. Auglýsingar eru ekkert sérstaklega skemmtilegt
sjónvarpsefni og þær verða vart verri en þegar þær eru hlaðanar pólitískum áróðri auk þess sem það svíður illa undan þeirri vitneskju að þessi skáldskapur sem er borinn á borð fyrir sjónvarpsáhorfendur hefur áhrif á það hvernig fólk ráðstafar atkvæði sínu.
Sjónvarpið tróð svo áróðursþáttum flokkanna á dagskrá fyrir framan allt það besta sem það býður upp á í dagskrá sinni og þannig mátti maður horfa á áróðursmynd Framsóknarflokksins sem náði nýjum hæðum í leiðindum áður en maður fékk vikuskammtinn sinn af Sópranós.

Þarna kom hins vegar Bretinn mér til bjargar en á mánudaginn komst ég að því að BBC Prime sýndi gömlu gamanþættina Not the Nine O’Clock News á sama tíma og Riefenstahlmyndir flokkanna voru á dagskrá.
Ég slapp því blessunarlega við alla aðra flokka en framsókn en missti þó fyrir vikið af huggulegu spjalli forsætisráðherra og Gísla Marteins sem virðist nú þegar hafa verið skráð á spjöld íslenskrar fjölmiðlasögu.
Markaðurinn á samkvæmt kenningunni að gera okkur frjáls en ég fæ samt ekki séð að auglýsingar og lýðræði eigi mikla samleið. Það er þó huggun harmi gegn að við kjósum bara á fjögurra ára fresti og getum kokgleypt sjónvarpsþvæluna án meltingartruflana þess á milli.

Fréttblaðið.


| 15:19 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff