Mánudagur, 12. maí 2003
Einhverra hluta vegna stenst enginn Bretum snúning þegar það kemur að gerð úrvals spennuþátta fyrir sjónvarp en breskt efni af þessu tagi er iðulega bæði betur skrifað og betur leikið en það sem Bandaríkjamenn senda frá sér. The Sopranos er augljós undantekning á þessu enda óvenju mikið lagt í handrit, persónusköpun og leik í þeim ágætu þáttum.
Sjónvarpið sýnir um þessar mundir þættina Illt blóð eða Wire in the Blood. Þetta er breskur krimmi eins og þeir gerast bestir enda skarta þeir hinum geðþekka töffara Robson Green í aðalhlutverki.
Hann virðist tryggja ákveðin gæði þegar það kemur að spennuþáttum og er í því sambandi skemmst að minnast lögguþáttanna Touching Evil sem Stöð 2 sýndi fyrir einhverjum misserum. Þar lék Green harðsnúna löggu með heilmikinn fjölskylduvandamálapakka á bakinu. Nú er hann í hlutverki sálfræðingsins Tony Hill sem aðstoðar lögregluna við að átta sig á því hvaða viðbjóður kraumar í kollum geðveikra morðingja.
Þættirnir minna í grunninn svolítið á Cracker með hinum þéttvaxna Robbie Coltraine í aðalhlutverki þó aðalpersónurnar eigi fátt sameiginlegt annað en það að vera snjallir sálar. Þá eiga þeir báðir í mátulegu basli með sjálfa sig sem gerir það vitaskuld að verkum að þeir eru miklu mannlegri en til dæmis ofurmennin sem leysa sakamál í Las Vegas og Miami undir merkjum CSI.
Breskir krimmar eru einfaldlega sælgæti og því um að gera að leggja sig eftir því að fylgjast með þeim. Bandarískir sakamálaþættir eru aftur á móti eitthvað sem maður grípur í þegar ekkert betra er að gera.
| 10:23 |