Mánudagur, 05. maí 2003
Sjónvarpið er orðið helsti tengiliður manneskjunnar við sjálfa sig og umhverfi sitt þannig að með því að skoða hvað íslenska þjóðin horfir á í sjónvarpinu er hægt að draga upp nokkuð skýra mynd af andlegu ástandi hennar.
Samkvæmt nýjustu áhorfskönnun Gallups eru Íslendingar því fégráðugir og húmorslausir smáborgarar sem eru að kafna úr forvitni um hagi náungans.
Spaugstofan er langvinsælasti sjónvarpsþáttur landsins. Hún var það líka fyrir rúmum áratug en þá var hún að vísu fyndin. Innlit/útlit er vinsælasti þátturinn á Skjá einum en í þessum þætti leyfir Vala Matt okkur að sjá hvernig flotta og skemmtilega fólkið flísaleggur baðherbergin sín. Vinsælasti þátturinn á Stöð 2 er svo Viltu vinna milljón og Sjálfstætt fólk Jóns Ársæls er í þriðja sætinu.
Það eru sem sagt fimmaurabrandarar, forvitni um hagi náungans og fégræðgi sem eru drifkrafturinn í sálarlífi sjónvarpsþjóðarinnar og þarf því engan að undra að stjórnmálamenn geri lítið annað í kosningabaráttunni en að lofa skattalækkunum og segja brandara. Að tala um það sem máli skiptir er ekki líklegt til vinsælda.
Djúpa laugin er þriðji vinsælasti þátturinn á Skjá einum sem er víst
stöð unga fólksins þannig að það má vera ljóst að ungir kjósendur munu mæta sterkir til leiks á laugardaginn. Síðasti þáttur gekk út á það að þrjár stúlkur veltust um af hlátri yfir því hvað þær væru flottar kortér í þrjú gellur sem hefðu ekki miklar áhyggjur af því hjá hverjum þær svæfu hverju sinni.
Er þetta ekki bara spurning um að leggja niður lýðræðið?
Fréttablaðið.
| 20:38 |