»  fjölmiðlar  »  Vorboðinn fúli
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Vorboðinn fúli
Sunnudagur, 18. maí 2003

(Finnst endilega að ég hafi skrifað þennan pistil áður. En það er alltílæ að djöflast aðeins á The District sem eru sjálfsagt verstu sjónvarpsþættir í heimi. Billi er amk pottþéttur á því).

Það hefur skapast ákveðin hefð fyrir því hjá íslenskum sjónvarpsstöðvum að eftir því sem sól hækkar á lofti setja þær lakara efni á dagskrá enda líklegt að mörlandinn hafi eitthvað betra að gera í blíðunni en hanga fyrir framan imbakassann. Það leynir sér ekkert á dagskrá RÚV að það er að vora; Sópranós er að klárast og lögreglustjórinn Jack Manion er kominn aftur.

Manion stjórnar lögregluliði Washingtonborgar í þáttunum The District eða Lögreglustjórnaum eins að það heitir á íslensku. RÚV sýndi fyrstu þáttaröðina fyrir einhverju misserum og þrátt fyrir það að þættirnir eru átakanlega hallærislegir og lítið spennandi hafa þeir notið það mikillar hylli í Bandaríkjunum og því fáum við nú að horfa upp á annan skammt.

The District líður ekki síst fyrir aðalleikarann Craig T. Nelson sem er c-myndaleikari af guðs náð. Hann er með puttana í framleiðslunni og það skilar sér í magnaðri upphafningu persónunnar sem hann leikur. Hann er þessi dæmigerði réttsýni harðnagli með hjarta úr gulli. Hann tekur harkalega á vondu köllunum, öskrar á slæmu löggurnar en syngur þess á milli og dansar og lætur sér annt um þá sem minna mega sín. Svo er hann auðvitað uppfullur af alls konar ömurlegi niðursuðudósaheimspeki um lífið og tilverunna, eins og gengur og gerist með svona töffara.
Þannig er staðan hjá sófarottunum í sumar og í stað margbrotins mafíósa sem á við offituvandamál og þunglyndi að stríða sitja þær uppi með enn einn ömurlegan veraldarvanan harðjaxlinn sem ætlar sér að bæta heiminn með því að vera vondur við vonda fólkið og góður við góða fólkið (George W. Bush?) og slær um sig með ömurlegum frösum.

Fréttablaðið.


| 19:04 |
komment

Búðu í Bandaríkjunum og þú skilur.

Nr. 1 | AlanHudson | 19.05.2003 | 5:12:32 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff