»  fjölmiðlar  »  Hómer skyggir á sumarið
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Hómer skyggir á sumarið
Mánudagur, 30. júní 2003

Ég var rétt mátulega búinn að lýsa því yfir að ég ætlaði að láta það eiga sig að borga af Stöð 2 í sumar þegar ég fékk bækling frá Norðurljósum um allt fínerís dagskrárefnið sem fyrirtækið ætlar að splæsa á áskrifendur sína yfir sumarmánuðina. Ég hafði líka lýst því yfir að Sópranós fjölskyldan væri eina fjölskyldan sem ég gæti hugsað mér að fórna fögrum sumarkvöldum fyrir þegar Simpsons fjölskyldan var reiknuð aftur inn í jöfnuna - og skekti útkomuna að sjálfsögðu.
Skemmdar og meðvirkar fjölskyldur eru nefnilega í miklu uppáhaldi hjá mér og því gilda sömu lögmál um Hómer Simpson og hans fólk og Tóný Sópranó og mafíufjölskylduna hans.

Stöð 2 kom því með krók á móti bragði með því að tefla Hómer fram í júlí og ég sé mig tilneyddan til að borga gíróseðilinn og sitja fyrir framan sjónvarpið næstu vikurnar. Maður verður auðvitað að ná sem mestu út úr peningnum og horfa líka á allt hitt ruslið þannig að öll góðu fyrirheitin um útivist og heilbrigt líferni eru fokin út í veður og vind og við Hómer munum eyða sumrinu saman, flatmaga uppi í sófa, kýla vömbina og drekka bjór.
Það leynast líka alls konar hættur í öllu útivistarbrölti og maður er því hvergi öruggari en heima hjá sér fyrir framan tækið. Í sumar verð ég svín og Stöð 2 ætlar að kasta perlum fyrir mig.


| 11:05 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff