»  fjölmiðlar  »  Mannlegir harmleikir
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Mannlegir harmleikir
Laugardagur, 14. júní 2003

Fátt lýsir því sjálfsagt betur hversu lágur siðferðisstandardinn á Íslandi er orðinn en sú undarlega tilhneiging manna að tala sí og æ um "mannlega harmleiki" þegar bíræfnir þjófar eru staðnir að verki. Hetjur gömlu grísku harmleikjanna fengu einhverra hluta vegna ekki ráðið við örlög sín. Þær voru einfaldlega dæmdar frá upphafi og áttu sér aldrei viðreisnar von og þurftu fyrir vikið að stinga úr sér augun eða farga sjálfum sér og sínum nánustu.

Ég fæ ekki alveg séð hvað þessir mannlegu harmleikir eiga sameiginlegt með örlögum íslenskra fjárglæframanna og annarra skúrka af hinum ýmsu sauðahúsum. Íslensku harmleikirnir virðast aðallega fela það i sér að það komst upp um aumingja mennina.

Flestir eiga þó ættingja, fjölskyldu og vini sem taka út fyrir brot þeirra. Þetta fólk þarf saklaust að standa af sér kjaftasögur og oft á tíðum magnaða fjölmiðlaumræðu.

Einn þáttur í slíkum fjölskylduharmleik var leikinn í beinni útsendingu á Útvarpi Sögu í liðinni viku þegar foreldrar manns sem er grunaður um framleiðslu á barnaklámi hringdu í Arnþrúði Karlsdóttur. Þetta sorglega símtal var hvalreki bæði á fjörur Arnþrúðar og útvarpsstöðvarinnar sem hefur gert lítið annað síðustu daga en endurflytja spjalið svo sem fæstir missi nú af tragedíunni.

Fyrir vikið er um fátt annað rætt í kaffistofum og reykpásum úti um allan bæ. Almenningsálitið virðist þó ekki vera með Arnþrúði og Sögu en sú skoðun er ríkjandi að Arnþrúður hefði átt að taka tillit til þess að hún var að tala við fórnarlömb harmleiks sem vart gátu hamið tilfinningar sínar.

Það er mikið til í því að Arnþrúður hefði getað höndlað þetta öðruvísi og reynt að tóna þetta niður frekar en hitt en getur fjölmiðlafólk yfirleitt stillt sig þegar því bíðst hlutverk í mannlegum harmleik?


| 10:52 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff