»  fjölmiðlar  »  Síðasti Sópranóspistillinn
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Síðasti Sópranóspistillinn
Mánudagur, 02. júní 2003

Sópranófjölskyldan er ekki á dagskrá Sjónvarpsins í kvöld og maður er hálf dapur yfir því að geta ekki fylgst lengur með hremmingum eftirlætis mafíósans síns og þar fyrir utan er ekki laust við að maður hafi nokkrar áhyggjur af sínum manni þar sem við skyldum við hann með allt niður um sig. Það er merkilegt með þessa þætti að þeir enda eins og ekkert hafi í skorist og að næsti þáttur sé á dagskrá eftir viku en ekki marga mánuði.

Amerískir framhaldsþáttaseríur enda hvern árgang jafnan á því sem þeir kalla cliffhanger sem á að tryggja það að áhorfandinn hætti ekki að hugsa um aðalpersónurnar og verði mættir fyrir framan tækið þegar sumarendursýningum lýkur og sagan heldur áfram. Gifta Niles og Daphne sig? Er Monica ólétt, eða kannski Rachel? spurningarnar eru margar og við bíðum alltaf eftir svari.

Slagkrafturinn í Tóný Sópranó er slíkur að hann hættir bara og það er ekki bara einhver ein spurning sem brennur á manni þangað til framhaldið kemur. Þær eru margar, svo margar að þeim verður ekki svarað í þrettán tímum hjá geðlækni. Þetta er mikil snilld.

Þversagnakenndur persónuleiki Tónýs er endalaus uppspretta vangaveltna. Hann er klár en samt sauðheimskur á köflum. Hann er heilmikið karlmenni en um leið bara stórt barn og þegar frúin tekur hann á beinið fyrir framhjáhald bendir hann henni á að hún sé litlu betri þar sem hún hafi stolið frá sér seðlabúnti. Menn eru nú drepnir fyrir minni sakir. Þetta er auðvitað galið en maður heldur með sínum manni í gegnum þykkt og þunnt. Það er líklega galið líka.


| 10:57 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff