Föstudagur, 04. júlí 2003
Súlustaðir og það sem fram fer innan veggja þeirra er eitt af mínum helstu áhugamálum og ég hef fylgst átekta með sögu nektardansins á Íslandi frá því að Pan hópurinn var og hét. Ég taldi mig því heldur betur komast í feitt þegar ég datt inn í endurtekinn þátt Arnþrúðar Karlsdóttur á kvöldgöngu í vikulokin.
Hún byrjaði á því að reyfa baráttu femínista gegn striplinu og ég sperrti strax eyrun og hækkaði í vasaútvarpinu enda sá ég fram á góðan debatt. Fyrstu vonbrigðin létu þó ekki á sér standa þar sem Arnþrúður tilkynnti að fulltrúi femínista hefði afþakkað boð um að koma í þáttinn og rökræða við innkaupastjóra nektardansmeyja hjá Bóhem.
Sá fékk því heldur betur að vaða uppi og ég get ekki neitað því að ég skemmti mér konunglega yfir undarlegum málflutningi mannsins en verð þó að viðurkenna að ég er litlu nær.
Hann fann málflutningi femínistanna allt til foráttu og lét svo fjölmiðla einnig hafa það óþvegið fyrir það að éta allan áróður "þessarra kvenna" upp gagnrýnislaust. Sjálfsagt var einhver vitglóra í því sem hann var að segja og það er ekki útilokað að femínistarnir sleppi að nokkru leyti við erfiðar spurningar þar sem þær hafa pólitísk réttþenkjandi málstað að verja og hver vill setja sig upp á móti baráttu gegn meintu mansali?
Málstaður innkaupastjórans er að sama skapi slæmur og hann hefði mátt hafa það í huga þar sem fordómarnir og mannfyrirlitningin, sem á köflum, skein í gegnum málflutning hans var hvorki honum né þeirri stafsemi sem hann hefur tekið að sér að verja til framdráttar.
Fyrst fannst mér femínistarnir frekar slappir að leggja ekki í þennan gaur en þegar hann fór að svara innhringingum tók hann af allan vafa um að það hefði verið hrein tímasóun að ætla sér í málefnalegar samræður við hann.
Þegar hann var spurður hvort hann vildi að dætur sínar stunduðu nektardans. "Villt þú að synir þínir séu hommar?" var svarið þannig að það er semsagt stigs- en ekki eðlismunur á samkynhneigð og súludansi þar sem samkynhneigðir hafa líkt og súludömur mátt búa við fordóma í samfélaginu.
Annar hvor okkar hlýtur að vera að misskilja eitthvað?.