»  fjölmiðlar  »  Aðalgellan mætt
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Aðalgellan mætt
Sunnudagur, 31. ágúst 2003

Það er byrjað að skyggja á kvöldin, skólarnir eru byrjaðir og dagskrá Sjónvarpsins er að hressast. Það sem sagt allt í góðu og lífið gengur sinn vanagang. Mánudagskvöldin á RÚV verða býsna næringarrík næstu mánuðina en njósnagellan Sidney Bristow er mætt til leiks í öðrum árgangi Alias þáttanna.
Jennifer Garner er rísandi stjarna í Hollywood og fer létt með að halda einföldum þáttunum uppi enda tekur hún sig geysilega vel út í þröngum fötum og getur slegist eins og Lara Croft og stendur því undir öllum kröfum Hollywood til nútímakonunnar sem þarf að vera sæt, klár og kunna kúng fú.

Alias hafa það fram yfir innhihaldslaust drasla af svipuðu sauðahúsi, Largo Winch til dæmis, að þættirnir eru þokkalega leiknir, vel teknir og stílfærðir. Þetta fór vel af stað fyrir viku þegar mikið gekk á hjá Sydney sem hitti móður sína sem reyndi að kála henni, enda ein hættulegasta kona í heimi á ferðinni.
Afskaplega ánægjulegt að sá sænskættuðu leikkonuna Lenu Olin í stuði í hlutverki mömmunnar. Quentin Tarantino kom líka í heimsókn í fyrra þannig að er lengi von á góðu.
Sjónvarpið fullkomnar svo mánudagskvöldið með því að endursýna Sopranos frá því í vor. Þetta eru tvímælalasut bestu þættirnir sem boðið er upp á í amerísku sjónvarpi þessi árin og endursýningar því alltaf velkomnar þar sem biðin eftir næstu seríu er býsna löng og ströng.


| 11:09 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff