»  fjölmiðlar  »  Misskilinn snilllingur
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Misskilinn snilllingur
Þriðjudagur, 26. ágúst 2003

Bókstafurinn E er orðinn að skjaldarmerki Skjás Eins en nánast allir dagskrárliðir stöðvarinnar eru merktir þessum staf, sem gefur það skýrt til kynna að viðkomandi þáttur er endursýndur.
Flestum þykir nóg um öll E-in en þau eru svona um það bil 6 talsins á góðum degi. Mér finnst E-in ágæt, ekki síst þegar þau fylgja þáttunum sem kenndir eru við lög og reglu.

Upprunalegu Law & Order þættirnir virka alltaf best með þá Briscoe og Curtis í broddi fylkingar. Criminal Intent sækja stöðugt í sig veðrið og eru í raun prýðisgott efni eftir að maður hefur tekið aðalpersónuna í sátt.
Hann Robert Goren er nefnilega snillingur sem veit allt en það er orðin lenska í amerísku löggusjónvarpi að Sherlock Holmes gengur aftur í aðalgaurunum. Þetta er sérstaklega hvimleitt í tilfelli Gils Grissoms í CSI en sá náungi er gersamlega óþolandi besserwisser.
Mér fannst Goren í Criminal Intent lengi vel enn leiðinlegri en Grissom þar til ég áttaði mig á því að það sem gerir hann þreytandi er hversu vel hann er leikinn.
Vincent D’Onofrio er snilldarleikari eins og frammistaða hans í kvikmyndunum The Salton Sea, Ed Wood og Full Metal Jacket sannar og hann túlkar hálfofvirkt lögguséníið, sem er alltaf á iði, af stakri snilld. Svona gaurar eru auðvitað óþolandi og þegar maður skoðar hann í þessu ljósi er hann bara fyrirtaks persóna. Besserwisser sem veit af því og kemst upp með það.


| 11:08 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff