»  fjölmiðlar  »  Fjarstýringaflipp
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Fjarstýringaflipp
Laugardagur, 13. september 2003

Blaðamenn hafa þann þunga kross að bera að þeir þurfa helst að vita allt um alla og mega því ekki missa af einum einasta fréttatíma, bæði til þess að vera með allar hræringar í þjóðlífinu á hreinu og ekki síður til þess að sjá hvort keppinautarnir séu nokkuð að skúbba einhverju geggjuðu.
Stöð 2 hefur gert mér þessa innbyggðu yfirvinnu mína býsna erfiða með því að stilla kvöldfréttatíma sínum upp beint á móti kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins.
Ég hef verið í svitakófi, með puttana á fjarstýringunni, að reyna að ná innihaldi fréttatíma beggja stöðva og það sem gerir þetta svo enn bagalegra er að hljóðið í Stöð 2 er miklu hærra í sjónvarpstækinu mínu en hjá RÚV þannig að þegar ég skipti af Boga Ágústssyni sem segir mér helstu tíðindi á rólegum spjallnótum yfir á Karl Garðarsson fæ ég alltaf vægt taugaáfall þar sem hann öskrar fréttir sínar á mig.

Áreitið er því gífurlegt og eftir að hafa setið með tvær fjarstýringar, eina til að hækka og lækka, og aðra til að skipta á milli stöðva í klukkustund er ég orðinn algerlega úttaugaður og er engu nær um hvað er að gerast í mínu næsta nágrenni og hvað þá úti í hinum stóra heimi.
Ég skil svo sem alveg að Stöð 2 hafi kosið að flytja fréttatíma sinn aftur þar sem hún var fyrir löngu búinn að tapa áhorfi fyrir Pókemonum og öðrum teiknimyndafígúrum á RÚV. Ég held þó, sem fyrr, að stríð fréttatímanna vinnist ekki milli klukkan 19.00 og 19.30 heldur muni Ísland í bítið og Kastljósið skera úr um hvor stöðin heldur manni rólegum á fjarstýringunni.
Hvort Þórhallur og Jóhanna muni ná að skyggja á Kastljósið er svo allt önnur saga.


| 11:11 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff