»  fjölmiðlar  »  Himnasending
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Himnasending
Sunnudagur, 28. september 2003

Mikið yljaði það mér um hjartaræturnar að sjá Gunnar í Krossinum í jötunmóð í Ísland í dag undir lok síðustu viku. Ég held að ég hafi aldrei verið sammála Gunnari um nokkurn skapaðan hlut en samt hef ég óendanlega gaman að því að hlusta á hann miðla fordómafullum og einstrengingslegum skoðunum sínum.

Það fór Gunnari vel að veitast að Þórhalli miðli og ég sá hann fyrir mér sem verðugan arftaka galdramannsins Harry Houdini sem eyddi drjúgum hluta ævi sinnar í að fletta ofan af miðlum. Hann lofaði því líka að láta heyra frá sé að handan eftir andlát sitt. Það er að segja ef það er eitthvað fyrir handan. Það hefur ekkert heyrst frá honum enn.
Gunnar virtist, þrátt fyrir eldmóðinn, hálf daufur. Kannski fóru þáttastjórnendurnir í taugarnar á honum. Þau voru í það minnsta frekar leiðinleg við hann og einkennilegt af þeim að vilja endilega neyða hann til þess að segja að Þórhallur væri handbendi djöfulsins. Hann sló þó þann varnagla að hann hefði það eftir Páli postula og gæti ekki verið að rengja hann.
Hafi Houdini ekki fundið neitt hinum megin hafa þeir Þórhallur og Gunnar báðir lítið til síns máls og þræta þeirra var líka frekar fyndin en innihaldsrík. Það má líka segja að þeir séu í sama bransanum og geri markvisst út á einlæga trú fólks á ást sem nær út yfir gröf og dauða, kærleika, eilíft líf og eitthvað sem er okkur mönnunum æðra og betra. Það er ljótt.


| 11:11 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff