Mánudagur, 24. nóvember 2003
Það þarf engan snilling til að sjá það að spjallþættir í sjónvarpi standa og falla með þeim viðmælendum sem stjórnendur fá í heimsókn til sín hverju sinni. Gísli Marteinn Baldursson hefur verið gagnrýndur nokkuð fyrir það undanfarið að bjóða til sín einsleitri hjörð sem hann smalar víst einna helst saman á göngum Ríkisútvarpsins í Efstaleiti.
Ég veit svo sem ekkert hvað er til í þessu þar sem ég hef aldrei séð heilan þátt með Gísla Marteini fyrr en nú og þátturinn á laugardaginn var sko ekkert slor. Gestir hans að þessu sinni voru af betri endanum; Hallgrímur Helgason, rithöfundur, Hjálmar Hjálmarsson, leikari, og fjöllistakonan Leoncie frá Sandgerði.
Leoncie er vitaskuld afskaplega blátt áfram og ögrandi í framkomu og leggur mikið upp úr kynþokka sínum. Gísli Marteinn hrósar víst öllum konum sem hann fær í heimsókn fyrir það hversu óvenju glæsilegar og vel til fara þær séu og í þessu tilfelli var hann ekki að ýkja og þó Hallgrímur, Hjálmar og Gísli séu engir aukvisar létu þeir Leoncie slá sig út af laginu og voru hálf kindarlegir í návist þokkagyðjunnar.
Gísli var á nálum og virtist eiga von á hinu versta. Hallgrímur, sem kallar ekki allt ömmu sína og hefur farið í sjómann við sjálfa bláu höndina, vissi varla vita hvort hann ætti að hlæja eða gráta og það leit út fyrir að Hjálmar væri hreint og beint hræddur við söngkonuna þar sem hann sat þétt við hlið Hallgríms og hefði þurft að skríða í kjöltu hans til að komast fjær Leoncie. Alveg bráðskemmtilegt á að horfa og Leoncie innsiglaði frábæran þátt með ógleymanlegum flutningi á Kópavogslaginu sínu.
Gísli Marteinn kann greinilega að bjóða til sín skemmtilegu fólki þegar sá gállinn er á honum en þrátt fyrir það verður erftitt fyrir hann að toppa þennan gestalista.
Fréttablaðið
| 14:44 |