»  fjölmiðlar  »  Skítlegt eðli
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Skítlegt eðli
Miðvikudagur, 26. nóvember 2003

Samkvæmt orðabókarskilgreiningunni er orðið "survivor" notað yfir þann sem kemst lífs af, sem sagt einhvern sem stendur uppi þegar aðrir eru fallnir frá. Survivor virðist því í fljótu bragði réttnefni fyrir sjónvarpsþátt sem greinir frá hópi fólks sem reynir að draga fram lífið við erfiðar aðstæður þar til aðeins einn stendur eftir.

Það þarf þó ekki að horfa á marga Survivor þætti til að gera sér grein fyrir því að Svikarinn væri nafn sem fangaði eðli þáttarins betur. Þetta hefur aldrei verið jafn áberandi og á mánudaginn þegar hyskið sem er samankomið á Perlueyju kaus þursinn Rupert burt. Rupert er 100% karlmaður, stór, krúttlegur og fúlskeggjaður bangsi sem hafði alla burði til að vinna keppnina um milljón dollarana. Í sínu daglega lífi vinnur hann sem ráðgjafi fyrir unglinga í ógöngum og minnir svo mikið á skógarvörðinn Hagrid úr Harry Potter myndunum að það var bara ekki hægt annað en að falla fyrir honum.
Þessi góðlegi sjóræningi hefur haldið félögum sínum uppi, keyrt móralinn áfram, veitt til matar og sýnt það í verki að hann er ekta "survivor". En þar sem þættirnir sigla undir fölsku flaggi átti hann aldrei séns vegna þess að til þess að lifa af í Survivor þarf maður ekki á líkamstyrk, þrautgæði og útsjónasemi að halda. Sá sem er með skítlegasta eðlið vinnur.
Þetta snýst allt um að ráðskast með hina með tilheyrandi blekkingum og lygum og koma sem flestum rýtingum í bak hinna. Öfundin og illmælgin eru því drifkraftuirnn sem kemur fólki á toppinn í Survivor og því mátti ofurmennið Rupert sín ekki mikils gegn þrælslundaðri hjörðinni sem sveik hann á ögurstundu.


| 14:45 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff