»  fjölmiðlar  »  Skyndilausnir
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Skyndilausnir
Miðvikudagur, 19. nóvember 2003

Það er voðalega þægilegt að geta sest niður fyrir framan sjónvarpið eftir vinnu, á meðan fólk er að deyja einhvers staðar langt í burtu úr hungri, vosbúð og stríðsátökum, og fá niðursoðnar skynilausnir á öllum helstu kvillum sem hrjá okkur sem búum í siðmenntuðu samfélagi vestrænna manna.

Sjónvarpssálfræðingurinn Phil McGraw ríður á vaðið á Skjá Einum síðdegis og segir okkur að við megum ekki berja börnin okkar og éta rjómatertur þegar okkur líður illa. Allt einföld og gild sannindi en einhvern veginn læðist að manni sá grunur að það fólk sem kemur í sjónvarpsal til doktorsins þurfi á lengri og ítarlegri meðferð að halda en 10 mínútna samtali við
sprelligosa. Það sama á örugglega við um flesta þá sem horfa á þáttinn og þakka sínum sæla fyrir að vera ekki svo langt leiddir að þeir þurfi að hlaupa með krísurnar sínar í sjónvarpið.
Dr. Phil er samt prýðilegt sjónvarpsefni þó lausnirnar sem hann býður upp á endist varla í 15 mínútur. Sömu sögu er að segja af Queer eye for the Straight Guy þar sem samkynhneigðar tískulöggur taka sig til og lappa upp á útlitið á gagnkynhneigðum leppalúðum sem eru sér og sínum til skammar með úfið hár, skeggbrodda, í hvítum sokkum með sportröndum. Hommarnir gera kraftaverk á þursunum en breytingin verður varla varanleg og útliti þeirra hrakar væntanlega um leið og hommarnir fara heim.
Það er samt gott að vera bara Íslendingur og geta verið góður maður bara með því að berja ekki börnin sín, fara í fótsnyrtingu einu sinni í mánuði og láta Völu Matt velja fyrir sig gólfefni.


| 14:43 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff