»  fjölmiðlar  »  Stöð 2+ 10 ár
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Stöð 2+ 10 ár
Miðvikudagur, 05. nóvember 2003

Þar sem ég er fortíðarfíkill og meinilla við allar breytingar á ég í mikilli innri baráttu þessa dagana sem snýst um það hvort ég eigi að splæsa á mig áskrift af Stöð 3. Ég er ekki að missa af neinu, þannig lagað, þar sem stöðin byggir nánast eingöngu á endursýndu efni en það vill bara þannig til að sumt efni þolir endursýningu. Það er með öðrum orðum sígilt.
Þá vill svo skemmtilega til að efnið sem er endursýnt á Stöð 3 var sýnt í árdaga Stöðvar 2 og þar sem ég gerðist áskrifandi að Stöð 2 áratug eftir stofnun hennar hef ég ekki séð allt þetta dót. Stöð 2 + er þeim sem
missa klukkustund úr lífi sínu á hverjum degi mjög kærkominn en hvað mig varðar er Stöð 3 í raun Stöð 2 + 10 ár.

Geimundrið Alf var alveg þrælsniðugur á sínum tíma og stendur áreiðanlega enn fyrir sínu. Hann eldist örugglega vel en annars þarf það ekki að vera neitt skilyrði fyrir endursýningu. Efni sem eldist illa er oft enn betur til þess fallið þar sem skemmtilgildið eykst í takt við hallærislegheitin sem tímans tönn á það til að naga inn í þætti sem áður voru töff. Myndi maður til dæmis ekki skemmta sér konunglega yfir Miami Vice, The Equalizer
og Magnum P.I.? Að maður tali nú ekki um alla furðulegu þættina sem Jón Óttar gerði á egóflippi sínu á fyrstu árum stöðvarinnar. Nefni bara sem dæmi réttarhöldin sem hann hélt yfir samfélaginu íklæddur dómaraskikkju og gott ef hann skartaði ekki hárkollu líka.
Hallærislegt en sígilt.


Fréttablaðið.


| 14:42 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff