»  fjölmiðlar  »  Viltu giftast klámstjörnu?
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Viltu giftast klámstjörnu?
Föstudagur, 14. nóvember 2003

Ég þreytist seint á því að þusa um hversu hallærislegir og bjánalegir þessir svokölluðu raunveruleikasjónvarpsþættir eru og forðast þá eins og heitan eldinn. Datt þó óvart inn í næstsíðasta þáttinn af The Bachelor og sé ekki fram á annað en ég verði að fylgjast með tvöföldum lokaþættinum í kvöld.
Þarna fær einhver ríkur gaur, sem er greinilega hálfviti, að velja sér eiginkonu úr hópi í meira lagi föngulegra fljóða.

Í þessum undanúrslitum voru þrjár eftir; ein sakleysisleg, ein barbíglyðra og svo dökkhært tálkvendi með frygðarglampa í augum. Ég hafði heyrt kenningar um að guminn væri búinn að sofa hjá tálkvendinu og glyðrunni en hefði ekki komist yfir góðu stúlkuna. En það sem er víst mest spennandi við þessa þætti er einmitt sú fullnægja slúðurþarfarinnar sem felst í því að geta í þær eyður sem myndast þegar stigið er í vænginn utan sjónmáls myndavélarinnar.
Ég veðjaði á að sú góða fengi að fjúka en las greinilega manngarminn vitlaust þar sem ljóskan fékk enga rós og hvarf á braut súr á svip. Vinnufélagi minn sem kann vel að meta allt sem er hreint og gott veðjar á góðu stúlkuna í lokaúrslitunum en ég set allt mitt traust á tálkvendið. Kann samt ágætlega við báðar og finnst réttast að hvorug lendi í þessum hundskjafti.
Sú sem missir af eiginmannsefninu þarf þó ekki að örvænta þar sem til stendur að hefja klámstjörnuleit í anda American Idol í Bandaríkjunum. Þeir þættir verða væntanlega funheitir og munu toppa allt raunveruleikasjónvarp hingað til og við sem fáum út úr því að horfa á fólk niðurlægja sig í sjónvarpinu fyrir 15 mínúturnar sínar frægu getum andað rólega enn um sinn. Raunveruleikasjónvarpið finnur alltaf nýjan farveg.


Fréttablaðið.


| 14:42 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff