»  fjölmiðlar  »  Dagar taldir
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Dagar taldir
Miðvikudagur, 03. desember 2003

klangur.gifJóladagatal Sjónvarpsins hefur fest sig í sessi sem ómissandi undanfari jólanna, rétt eins og aðventukransinn og skórinn úti í glugga. Sjónvarpið hefur dottið niður á það snjallræði að láta dagatalsþætti nokkurra ára ganga í hringrás. Þetta er kannski gert í sparnaðarskyni en kemur ekki að sök þar sem það nægir að láta um sex ár líða á milli endursýninga. Þá eru flestir þeir sem voru börn við frumsýningu að skríða á gelgjuskeiðið og ný kynslóð tekur efninu fagnandi.

Það varð uppi fótur og fit þegar það spurðist út að Klængur sniðugi yrði endursýndur í ár. Dóttir mín, sem var sex ára þegar Klængur var sýndur síðast, tilkynnti bróður sínum, sem þá var ófæddur, með miklum tilþrifum að hann ætti góðar stundir í vændum fyrir framan sjónvarpið næstu vikurnar.
Það gekk eftir og sá stutti hefur gónt opinmynntur og andaktugur á hrakfarir uppfinningamannsins Klængs sniðuga sem er að leita að unnustu sinni henni Lovísu með lærin þykku.
Það eina sem drengurinn getur fundið að þessu er hversu þættirnir eru stuttir enda er allt annað skothelt: sagan, brúðurnar, leikraddirnar, tónlistin og leikmyndin. Klængur sniðugi og brúðuleikurinn Jól á leið til jarðar, sem var gerður í Litháen, bera af öðrum jóladagatalsþáttum og sjálfsagt eru margir farnir að telja dagana þar til englarnir og Pa fá annað tækifæri til að stytta biðina eftir jólunum og það er engin spurning að Klængurn sniðugi verður aufúsugestur aftur eftir sex til sjö ár. Þessir þættir eru hreinlega dæmi um árstíðabundna klassík og barnaefni gerist ekki mikið betra.


Fréttablaðið


| 14:46 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff