»  fjölmiðlar  »  Rangar spurningar - rétt svör
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Rangar spurningar - rétt svör
Föstudagur, 12. desember 2003

Við erum alltaf að leita að sannleikanum. Ekki síst í sjónvarpinu þar sem myndavélin eltist við ímyndaðan raunveruleika í aragrúa þátta sem kenndir eru við raunveruleikasjónvarp. Þessi leit að merkingu, sannleika og haldbærri niðurstöðu er þó mest áberandi í spjallþáttum margs konar.

Sannleikskrafan er orðinn svo sterk að áhorfendur geta sjaldan sætt sig við niðurstöðu spjalls þáttastjórnenda við viðmælendur sína hvort sem um er að ræða stjórnmálamenn, listafólk, sjálfskipaða- eða hámenntaða sérfræðinga á hinum ýmsu sviðum.
Kverúlantarnir tuða daginn eftir yfir því á kaffistofum í heitum pottum og ekki síst á spjallrásum á Internetinu að umsjónarmenn spjallþátta séu vanhæfir, kúgaðir af stjórnvöldum og peningamönnum. Séu í besta falli heimskir en í versta falli þátttakendur í einu allsherjar samsæri um að kasta ryki í augu kjósenda og halda almenningi í skefjum blekkinga og einhliða umræðu. Þetta fólk kann sem sagt ekki að spyrja réttu spurninganna eða þorir því ekki.
Rætur meinsins þurfa þó ekki endilega að liggja í annarlegum hvötum, samsærum og greindarskorti þar sem þáttastjórnendur og viðmælendur tala sig beint inn í ákveðna orðræðu sem hefur verið við lýði áratugum saman. Það breytir engu hvort rætt eru um bókmenntir, box, kynferðisafbrot eða veðrið. Svörin eru stöðluð og spurningarnar líka. Það eina sem hefur skyndilega breyst er að almenningur vill ekki lengur heyra þennan meinlausa söng.
Það þarf því að brjóta umræðuna úr viðjum vanans og það verður ekki gert með því að reyna að spyrja "réttra" spurninga heldur þvert á móti "rangra" spurninga.
Ali G er brautryðjandi í þessum efnum. Kemur til dyranna klæddur eins og fífl en er snillingur. Hann spyr út í hött og kemur viðmælendum sínum stöðugt að óvörum og fær þá þannig til að gefa rétt svör við röngum spurningum. Það segir allt sem segja þarf hvernig Ali tók á bandarískum herforingja í liðinni viku. Hann ræddi mikið um dásemdir stríðs og ofbeldis og árásarstríð Bandaríkjanna á Kanada var honum stöðugt ofarlega í huga. Herforinginn kannaðist þó ekkert við fyrirhugað stríð. Og af hverju?
"Kanadamenn eiga ekkert sem okkur langar í." Svo mörg voru þau orð og segja allt um stríðsbrölt Bush Bandaríkjaforseta.
Ali G kann að spyrja rangra spurninga og fá réttu svörin.

Fréttablaðið.


| 14:46 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff