»  fjölmiðlar  »  janúar 2006
efnisflokkar

fjölmiðlar
janúar 2006

a long time ago...
Apakettir með ritvélar
Þriðjudagur, 31. janúar 2006

Sjónvarpstöðin Sirkus hefur undanfarið verið að ná nýjum og áður óþekktum lægðum í íslenskri dagskrárgerð og þá er mikið sagt enda er íslenski sjónvarpsruslahaugurinn risavaxinn. Stöðin réttlætir framleiðslu sína í auglýsingum með þeim rökum að hún sendi út efni gert af ungu fólki fyrir ungt fólk. Ef þættir á borð við Partý 101, Splash TV og Sirkus Rvk höfða virkilega til íslenskrar æsku er íslensk menning eins og hún leggur sig í miklu meiri hættu en blessuð tungan sem er víst í dauðateygjunum þessa dagana. Andleg fátækt nýju Sirkusþáttanna er svo yfirgengileg að manni dettur ekki annað til hugar en að hamsturinn sem keyrir áfram heilabú umsjónarfólksins og þeirra sem standa að baki þáttunum sé löngu sofnaður.

Þrátt fyrir þessa fordóma gat ég horft á nýjustu Sirkusafurðina, Kallana með Agli Gilzenegger og Partý Jens, með opnum hug og það sem meira er að eftir einn þátt er ég tilbúinn til að gefa þeim séns. Það má segja að með Köllunum sannist hið fornkveðna að ef þú lætur hundrað apa hamra á ritvélar nógu lengi muntu finna nýjan Shakespeare. Það er nefnilega vitglóra í Köllunum og húmor drengjanna er ekki algalinn. Egill Gilzenegger hefur sýnt það með kjaftforum pistaskrifum sínum á vefnum og í DV að hann er óvitlaus og Kallarnir munu standa og falla með honum og úthaldi hans. Hlutverk þessa Partý Jens í þáttunum er öllu óljósara og flest bendir til þess að hann muni enda í sömu tilvistarkreppu og svarta löggan í Miami Vice sem alla tíð mátti húka í skugganum af Don Johnson.

Myndataka og tæknivinna við þessa þætti er því miður sama fúskið og í öðru innlendu efni stöðvarinnar en sprettirnir sem Egill tók bættu það upp þannig að ef honum tekst að þétta prógrammið aðeins og halda sig innan ákveðinna marka ætti hann að vera í góðum málið. Hitt ruslið er dauðadæmt.


Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff