»  fjölmiðlar  »  Allt að gerast í imbanum
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Allt að gerast í imbanum
Þriðjudagur, 14. febrúar 2006

Það er brjálað að gera í sjónvarpsglápinu þessa dagana, svo mikið að það er eiginlega full vinna að fylgjast með öllum kræsingunum sem sjónvarpsstöðvarnar bera á borð. Þetta oframboð er samt eiginlega pirrandi þar sem sjónvarpsveturinn hefur verið frekar magur og leiðinlegur þannig að maður hefur neyðst til þess að lesa bækur og blanda geði við fólk. Svo hrúgast yfir mann í einni svipan Lost, Desperate Housewives, 24, Rome, My Name is Earl, ný Sipsons sería og ég veit ekki hvað og hvað. Þannig að nú er maður ekki mönnum sinnandi, les ekki stafkrók og sefur í sófanum. Er ekki nokkur leið að jafna þetta út þannig að fíklar eins og ég geti lifað sæmilega eðlilegu lífi allan ársins hring?

Hvað um það. Desperate Desperate Housewives koma sterkar inn og virðast ætla að halda athygli manns áfram. Það var komin þreyta í Lost undir lok fyrsta árgangsins og maður sá ekki fyrir sér að úthaldið myndi endast mikið lengur. Nýja röðin byrjar þó með fítonskrafti og framhaldið lofar góðu þó ég treysti mér enn ekki til að útiloka það að þetta renni út í tóma steypu.

Jack Bauer hjakkar enn í klisjunum í 24 en það vill bara svo skemmtilega til að þegar klisjur eru rétt matreiddar er fátt skemmtilegra. Hasarinn er í botni nú þegar og Bauer er stokkinn ljóslifandi inn í Die Hard stælingu. Allt í góðu með það. Þá er gaman að velta fyrir sér hvurslags aldarspegill þættirnir eru en þeir ganga allir út á hryðjuverkaógn og stríð gegn terroristum. Svona voða svipað og líf okkar allra um þessar mundir. Þá er það varla tilviljun að forseti Bandaríkjanna er forheimskur apaköttur. Skáldskapurinn er alltaf að stæla raunveruleikann.


| 20:37 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff