»  fjölmiðlar  »  Mannkynssaga fyrir byrjendur
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Mannkynssaga fyrir byrjendur
Þriðjudagur, 07. febrúar 2006

Þættirnir sem Stöð 2 sýnir um Rómarveldi virðast vera býsna vel heppnaðir og þarf svo sem engan að undra þar sem saga Rómar er vægast sagt krassandi og safarík. Þá er það þáttunum óneitanlega til framdráttar að þeir eru framleiddir af kapalstöðinni HBO og því má ganga lengra í ofbeldi og kynlífi en gengur og gerist amerískum sjónvarpsþáttum sem hugsaðir eru til sýninga í opinni dagskrá á landsvísu. Mátuleg bersögli á ákaflega vel við í þessu tilfelli enda vandséð að hægt sé að gera sukki, svínaríii, launmorðum og stríðsrekstri Rómverja sómasamleg skil án þess að sulla blóði og flagga beru holdi.

Þættirnir lýsa uppgangi Júlíusar Sesars og það verður ekki af honum tekið að hann var eðaltöffari, skarpgreindur og herkænn. Sesar er samt ekki eina persónan sem heillar þarna og þannig er mér ákaflega umhugað um ræðuskörungana Cató og Cicero en orðsnilld þeirra hefur lifað í gegnum mannkynssöguna rétt eins og hernaðarafrek Sesars. Það þarf ekki alltaf að bregða brandi til þess að vera töff.

Stærsti kosturinn við Rómarþættina finnst mér þó sá að þeir hafa vakið hjá mér forvitni og fengið mig til þess að rifja upp mannkynssöguna sem ég las í MR fyrir margt löngu. Nú ligg ég í sófanum fyrir framan sjónvarpið á sunnudagskvöldum með Rómarveldi I-II í fanginu og má varla vera að því að fylgjast með framvindunni á skjánum vegna þess hversu upptekinn ég er við að fletta í nafnaskránni og sannfæra mig um heimildagildi þáttanna. Hingað til virðist vera farið nokkuð vel með staðreyndir þannig að nú er ekkert annað að gera en vona að þættirnir teygi sig svo langt að Kleópatra fái sitt pláss og bíða eftir að Markús Antóníus taki í lurginn á Brútusi og Oktavíanus litli vaxi úr grasi og verði Ágústínus.

Jamm, það er fjör í Róm og spennan magnast þó endalokin muni koma jafn mikið á óvart og þegar Titanic sökk í samnefndri kvikmynd.


| 20:42 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff