»  fjölmiðlar  »  Sameinumst hjálpum þeim
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Sameinumst hjálpum þeim
Þriðjudagur, 21. febrúar 2006

Það var vel til fundið hjá Jóni Ársæli Þórðarsyni að slást í för með Nirði P. Njarðvík, Össuri Skarphéðinssyni og félögum til Tógó í Afríku og leggja tvo þætti af Sjálfstæðu fólki undir afrakstur ferðarinnar. Njörður er aðalsprautan hjá samstökunum SPES á Íslandi en markmið samtakana er að skjóta skjólshúsi yfir munaðarlaus börn í Tógó með því að reisa svokölluð barnaþorp. Össur er genginn til liðs við Njörð og hefur tekið af öll tvímæli um að stjórnmálamenn geti frekar látið gott af sér leiða utan veggja þinghússins en innan þess. Uppbygging barnaþorpsins hefur gengið vonum framar og nú hafa um 50 börn fengið skjól hjá SPES og Njörður og Össur hyggja á frekari landvininga börnum til heilla í Afríku.

Samtökin þurfa á velvilja og fjárframlögum almenings og fyrirtækja að halda eigi þau að geta haldið áfram að reisa þessi athvörf sem eru þegar farin að bjarga mannslífum. Þetta innlegg Jóns Ársæls er því þarft innlegg í umræðuna á tímum þar sem peninga- og einstaklingshyggjan drottnar yfir öllu og þeir sem eru iðnastir við að skara elda að eigin köku eru hafnir til skýjanna í fjölmiðlum á meðan þeir sem enn nenna að hugsa um þá sem minna mega sín eru litnir hornauga sem hálfgerðir kjánar.

Rétt eins og Jóni Ársæli tókst að vekja einhverjar kenndir jákvæðar upp hjá mér hefur Agli Gilzenegger tekist að drepa niður öflugustu frumhvöt mannskepnunnar þegar ég er annars vegar. Þátturinn hans Kallarnir á sirkus hefur ýmislegt til síns ágætis en að láta sér detta til hugar að fá söngvarann Geir Ólafsson til þess að kenna karlmönnum hvílubrögð er galin. Geir er sjálfsagt eitthvað til lista lagt en kynfræðsla er ekki hans sterkasta hlið og eftir að hafa horft á hann djöflast á uppblásinni dúkku á húddi bifreiðar á mánudag er ég orðin afhuga kynlífi og get varla hugsað mér nokkuð jafn óaðlaðandi að maður tali ekki um óspennandi.


| 20:40 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff