Miðvikudagur, 01. mars 2006
Sápuóperurnar The Bold and the Beautiful og Leiðarljós eru skólabókardæmi um dagsbirtusápur. Maður sér enga vitglóru í því að slíkt og annað eins skuli yfirleitt framleitt og enn síður að boðið sé upp á þetta drasl á dagskrám sjónvarpsstöðva.
Sápuóperurnar The Bold and the Beautiful og Leiðarljós eru skólabókardæmi um dagsbirtusápur. Maður sér enga vitglóru í því að slíkt og annað eins skuli yfirleitt framleitt og enn síður að boðið sé upp á þetta drasl á dagskrám sjónvarpsstöðva. Þetta er stórmóðgun við þá sem hafa tíma og nennu til þess að horfa á sjónvarp á venjulegum vinnutíma. Þar sem ósköpin eru ættuð frá Bandaríkjunum má samt ætla að einhverjir markaðsspekingar þar í landi hafi reiknað það út að fólk sem horfir á sjónvarp á daginn sé heimskara en þeir sem falla í dauðadá fyrir framan kassann að kvöldi dags. Þetta er líklega reginfirra og á áreiðanlega ekki við á Íslandi enda hefur það margsýnt sig að útkoman verður í meira lagi brengluð þegar Íslendingum er þröngvað inn í amerískar markaðsformúlur.
Mér fannst ég í það minnsta ekkert vitlausari um daginn þegar ég lá veikur heima í viku og hafði helst Stöð 2 til að stytta mér stundir. Það kom líka á daginn að Stöð 2 sinnir bara þessu hlutverki með nokkrum sóma. Sápuviðbjóðurinn er auðvitað til staðar en endursýningar á innlendu efni og gamanþáttum af kvölddagskránni gera dagglápið bærilegt og vel það.
Þá verður líka að segja Stöð 2 það til hróss að hún er eina stöðin sem heldur úti dagskrá frá morgni langt fram eftir nóttu. Sjónvarpsstöðvarnar eiga að taka hlutverk sitt sem afþreyingarmiðlar og tímaþjófar alvarlega og bjóða upp á eitthvað ananð en tónlistarmyndbönd yfir blánóttina.
Þá er vert að minnast sérstaklega á suður-amerísku sápuna My Sweet Fat Valentina, algeran gullmola sem leynist í dagskrá stöðvarinnar á daginn. Þetta eru bráðfyndnir þættir með kúnstugum persónum og langt yfir The Bold and the Beautiful hafnir. Bold and the Beautiful er þar fyrir utan algert öfugmæli þar sem allir sem þar koma við sögu eru frekar ófríðir. Hjá Valentínu eru allir hins vegar bráðhuggulegir. Dömurnar flottar og gaurarnir vörpulegir. Samkvæmt amerísku skilgreiningunni ætti að flytja Valentínu og félaga beint yfir á kvölddagskrána.
| 10:56 |